Viðburðir

Söluaðilar geta nú búið til og stjórnað viðburðum sem hafa fasta dagsetningu og takmarkað sætaframboð beint í Noona HQ. Viðburðina er síðan hægt að selja inn á Noona markaðstorginu þar sem seljandinn hefur beinan aðgang að um 170.000 notendum.

Við bókun fær kaupandinn skannanlegann miða sem hægt er að nálgast í Noona appinu og staðfestingu í tölvupósti. Miðann getur síðan söluaðili skannað við mætingu.

Kjörið ef halda á fyrirlestur, tónleika, námskeið, smakkanir, pop-up viðburði eða hvaða viðburð sem er þar sem plássið er takmarkað. 


Hvernig er viðburður stofnaður?

Það er einfalt og fljótlegt að stofna viðburði inn í Noona HQ. 

  1. Þú byrjar á því að fara í valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
  2. Smellir á viðburðir sem er að finna undir skipulag.
  3. Smellir á bláa plús hnappinn uppi í hægra horninu.
  4. Fyllir út þær upplýsingar sem eiga við viðburðinn. Hér að neðan mun ég fara nánar yfir hvað er hægt að stilla.
  5. Þegar allar upplýsingar hafa verið fylltar inn smellirðu á bláa hnappinn uppi í hægra horninu þar sem stendur á stofna.

Nú er komið að því að fylla út upplýsingar um viðburðinn:
ℹ️ Upplýsingar
  • Fyrst skref er að fylla út nafn viðburðar, lýsingu á viðburðinum og setja inn mynd sem lýsir viðburðinum.

🗓️ Tímasetning
  • Hér velur þú hvaða dag viðburðurinn á sér stað, klukkan hvað og tímalengd.

📍 Staðsetning
  • Einfaldlega sú staðsetning sem viðburðurinn á sér stað á.

👥 Fjöldastilling
  • Fjöldastillingar skiptast í einfaldar og flóknar fjöldastillingar.
  1. Einfaldar fjöldastillingar: notaðu einfaldar fjöldastillingar ef þú þarft bara að stýra heildarfjölda. Hér þarftu að setja inn hámarksfjölda, lágmarksfjölda gesta í hverri bókun og hámarksfjölda gesta í hverri bókun.
  2. Flóknar fjöldastillingar: Ef þú þarft að skipta hópnum niður á mismundandi svæði eða verð skaltu nota flóknari fjöldastillingar. Þetta virkar vel fyrir VIP svæði, sitjandi/standandi og meðlimi/gesti svo eitthvað sé nefnt. Hér þarftu að búa til svæði og setja inn nafn á svæðinu/verðinu, lýsingu, hámarksfjölda, lágmarksfjölda gesta í hverri bókun, hámarksfjölda gesta í hverri bókun og verð.
     

💰 Verð
  • Ef þú valdir einfaldar fjöldastillingar þá seturðu inn verðið í þessu skrefi. Hægt er að velja um einfalt verð og valkosti. 
  1. Einfalt verð: ef þú er með eitt fast verð velurðu þennan valmöguleika og setur inn verðið.
  2. Valkostir: ef þú ert með mismunandi verð eftir t.d. aldurhópum, VIP gestum, forsöluverði o.fl. þess háttar smellir þú á bæta við valkosti. Hér fyllir þú út heiti valkostar, verð og lýsingu. Fjöldi valkosta fer eftir því hversu mörg verð þú ert með fyrir viðburðinn.

🌐 Netbókanir
  • Hér geturðu valið hvort þú viljir selja viðburðinn þinn á netinu og getur sett inn staðfestingarskilaboð sem birtast í tölvupóstinum sem sendist út þegar viðburður er bókaður.

💳 Greiðslur
  • Viltu taka við greiðslum við bókun og sleppa öllu umstanginu í kringum að rukka? Hér geturðu stillt greiðslurnar og valið hvort þú viljir rukka staðfestingargjald við bókun eða alla upphæðina.

❌ Afbókanir
  • Hér geturðu stjórnað því hvort viðskiptavinir geti afbókað viðburðinn á netinu og með hversu löngum fyrirvara hægt er að afbóka.


Sér bókunarsíða fyrir þinn viðburð

Hver viðburður fær sína eigin síðu. Þegar þú hefur stofnað þinn viðburð færðu hlekk að sér lendingarsíðu fyrir viðburðinn sem þú getur deilt með þínum viðskiptavinum. Þú finnur hlekkinn að lendingarsíðunni með því að smella á viðburðinn → smella á hnappinn afrita hlekk. 



Yfirsýn

Undir valmynd → viðburðir er að finna dagatal þar sem þú ert með yfirsýn yfir hvern mánuð fyrir sig og hvaða viðburðir eiga sér stað í viðkomandi mánuði. Á sjálfu dagatalinu birtast síðan viðburðirnir inn í þeim degi sem þeir eiga sér stað og hægra megin á skjánum er listi yfir alla þá viðburði sem eiga sér stað í mánuðinum. 


Seldir miðar

Á sjálfum viðburðinum á dagatalinu sérðu hversu mörg prósent af heildarfjöldanum sem er í boði fyrir viðkomandi viðburð hefur verið seldur. Ef þú smellir síðan á viðburðinn sérðu hversu margir miðar hafa verið seldir.

Leita

Þarftu að finna ákveðin viðburð? Uppi í hægra horninu er leitarstika þar sem þú getur leitað eftir viðburðum. 

Breyta

Þarftu að uppfæra eitthvað í viðburðinum? Þú einfaldlega finnur viðburðinn → smellir á hann → breyta

Greiðslur

Viltu skoða hverjir hafa nú þegar greitt fyrir viðburðinn eða eiga eftir að greiða? Þú einfaldlega finnur viðburðinn → smellir á hann → á stikinnu til hægri á skjánum getur þú valið hvort þú viljir sjá alla sem hafa greitt eða eiga eftir að greiða og leitað eftir ákveðnum viðskiptavinum. 

Eyða

Þarftu að eyða viðburðinum? Þú einfaldlega finnur viðburðinn → smellir á hann → eyða


Skannanlegir QR miðar

Eftir bókun fær viðskiptavinur miða með einstökum QR kóða.
Starfsfólk getur skannað miðana í HQ með „Scan Ticket“ virkni, sem merkir viðskiptavin sjálfkrafa sem mættan („Show-up“). Það er gert með því að smella á viðburðinn og velja miði. 


Hvar sér viðskipavinur miðann sinn?

Þegar viðskiptavinur hefur bókað sig á viðburð fær viðkomandi sendan tölvupóst. Í tölvupóstinum er að finna eftirfarandi upplýsingar um viðburðinn:

  • Hvenær viðburðurinn á sér stað.
  • Upplýsingar um viðburðinn (ef þú hefur sett inn staðfestingarskilaboð).
  • Lengd viðburðar.
  • Verð og hvort búið sé að greiða.
  • Fyrir hversu marga var bókað.
  • Afbókunarstefna.
  • QR-kóði.
  • Hægt að setja viðburðinn í sitt persónulega dagatal.
  • Hægt að afbóka (ef það er í boði).

Ef viðskiptavinur er með Noona appið getur viðkomandi séð ofantaldar upplýsingar um viðburðinn inn í appinu ásamt því að fá áminningu 1 klst. áður en viðburðinn byrjar og getur sömuleiðis klárað að greiða fyrir viðburðinn ef það hefur ekki verið gert nú þegar.


Fullbókaður viðburður

Þegar viðburður er fullbókaður kemur borði yfir viðburðinn sem gefur til kynna að það sé fullbókað. 


Þá er það ekki fleira í bili, ekki hika við að heyra í okkur ef einhverjar spurningar vakna💛