Selja gjafabréf og klippikort

Það er fátt betra en að geta reddað fallegri gjöf, á síðustu stundu, fyrir vini og vandamenn 🎁 

Þú getur selt gjafabréf og klippikort inn á Noona markaðstorginu og ef þú ert með heimasíðu geturðu líka selt þau þar. 

Selja gjafabréf á netinu

Hvernig virkja ég netsöluna?

  1. Þú byrjar á því að fara í valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.

  2. Ferð undir netbeiðnir og smellir á prófíll fyrirtækis. 

  3. Smellir á bláa takkann þar sem stendur á virkja gjafabréf.

  4. Ef þú ert ekki með tengda greiðslugátt þarftu að byrja á því að sækja um hana. Þú gerir það með því að smella á sækja um greiðslugátt og fyllir út formið sem kemur upp.

  5. Þegar greiðslugáttin er orðin klár getur þú byrjað að taka við netgreiðslum fyrir gjafabréfunum. Þá smellir þú á þrjá punktana (...) á þeim gjafabréfum sem þú vilt selja á netinu og velur opna fyrir sölu á netinu. Þú getur síðan opnað og lokað fyrir netsölu einstaka gjafabréfa eins og þér hentar. 


Hvar birtast gjafabréfin og klippikortin inn á Noona?

Hægt er að kaupa gjafabréfin og klippikortin beint í gegnum prófílinn þinn í Noona appinu og á noona.is. Einnig birtast gjafabréfin þín á staðfestingarsíðunni sem kemur upp þegar að viðskiptavinir bóka hjá þér og þeir sem eru með þig í „uppáhalds” á Noona munu sjá gjafabréfin á upphafsskjánum sínum í appinu.

Þegar viðskiptavinir hafa keypt gjafabréf hjá þér fá þau staðfestingartölvupóst þar sem þau geta sett gjafabréfið í Apple Wallet eða Google Wallet og pdf. skjal þar sem hægt er að prenta gjafabréfið út. 

Dæmi um tölvupóst vegna gjafabréfakaupa má sjá hér að neðan:


Get ég selt gjafabréfin á heimasíðunni minni?

Já, þú getur bætt við takka inn á heimasíðuna þína sem beinir viðskipavinum inn á hlekk þar sem hægt er að kaupa gjafabréfin. Hlekkinn finnur þú með því að fara inn í valmyndina upp í hægra horninu - stillingar - sýnileiki og vefslóð á Noona

Aftan við þá slóð bætir þú síðan við "/vouchers". 


Selja gjafabréf í gegnum sölukerfið

Það eru tvær leiðir til þess að selja gjafabréf beint í gegnum sölukerfið. Þú getur annað hvort afgreitt það beint í gegnum tímabókun eða farið í nýja sölu.

Þegar þú hefur opnað söluyfirlitið smellir þú á gjafabréf og velur það gjafabréf sem viðskiptavinurinn vill kaupa. 

Þegar þú afgreiðir í gegnum 'Ný Sala' þá er góð venja að tengja viðskiptavininn  sem að er að kaupa gjafabréfið við söluna. 


Afhending gjafabréfa

Þegar viðskiptavinir þínir kaupa gjafabréf á stofunni hjá þér þá getur þú valið um að senda viðskiptavinum gjafabréfið á rafrænu formi, prentað það út fyrir þau eða notað þitt eigið útprentaða gjafabréf. 

1. Notaðu þitt eigið útprentaða gjafabréf

Við lok sölu gjafabréfa og klippikorta þá færðu upp kóða sem birtist á reikningnum. Þann kóða getur þú skrifað á útprentaða gjafabréfið.

Hér má sjá dæmi um kvittun með kóða:

2. Sendu gjafabréfið á viðskiptavin í tölvupósti

Þegar þú hefur klárað söluna getur þú sent viðkomandi gjafabréfið í tölvupósti. 

3. Prentað út gjafbréfið á staðnum

Í staðin fyrir að senda gjafabréfið á viðskiptavininn í tölvupósti getur þú sent það á netfangið ykkar og prentað það út. 

💌 Gjafabréfin eru sérstaklega sett þannig upp að það sé hægt að brjóta þau saman í þrennt þannig að það passi í umslag.


Þá er það ekki fleira í bili. Ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna💛