Nú er hægt að setja viðskiptavini á svarta listann :)
Hvernig virkar Svarti listinn?
Virkni hans er afar einföld. Svarti listinn virkar þannig að óvelkominn viðskiptavinur þarf að vera í viðskiptavinahópi sem heitir “Blacklist”. Þegar viðkomandi reynir að bóka sér tíma í þjónustu, þá fær hann upp að hann geti ekki bókað hjá tilteknu fyrirtæki.
Hvernig kveiki ég á Svarta listanum?
Til þess að kveikja á Svarta listanum ferðu í Valmyndina -> Stillingar → Öryggi → Black list.

Þar hakar þú í "Loka á netbókanir frá viðskiptavinum á svörtum lista".
2. Viðskiptavinurinn þarf að vera skráður í viðskiptavinahópinn "Blacklist". Héru eru leiðbeiningar fyrir því hvernig þú bætir viðskiptavin á hann.
Ferð í valmyndina -> viðskiptavinir -> smellir á viðkomandi viðskiptavin sem þú vilt bæta við á Svarta listann -> Smellir á Bæta inn í viðskitpavinahóp -> velur Blacklist.


Upplifun viðskiptavinar
Viðskiptavinurinn mun því fara í gegnum bókunarferlið á Noona en fær síðan skilaboð um að hann geti ekki bókað hjá tilteknu fyrirtæki.

Athugið að þú getur breytt textanum sem birtist þarna undir Stillingar -> öryggi
Eins og alltaf, ef þú ert með einhverjar hugmyndir, pælingar eða vangaveltur þá ekki hika við að heyra í okkur 💙