Þegar á að stilla opnunartíma á ákveðnum flokkum

Byrjaðu á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is og í valmyndinni vinstra megin velur þú Products > Categories

1. Finndu flokkinn sem þú vilt stilla opnunartíma fyrir og smelltu síðan á Breyta (Edit) efst í hægra horninu.

2. Finndu Opnunartímar (Opening hours) og smelltu á það.

3. Nú getur þú slegið inn opnunartímana í reitina Frá (From) og Til (To).
Ef þú þarft að bæta við öðrum opnunartíma sama dag (t.d. opið frá 11–14 og svo 17–21) þá smellir þú á BÆTA VIÐ ANNAN OPNUNARTÍMA (ADD ANOTHER OPENING HOUR) og slærð inn tímana í Frá og Til reitina.

4Ef allir dagar hafa sömu opnunartíma getur þú smellt á SAMA OG FYRRI VIRKIDAGUR (SAME AS PREVIOUS WEEKDAY) þar til allir dagar eru með sama opnunartíma.

5. Ef þú ert með aðra opnunartíma um helgar, til dæmis, smellir þú á BÆTA VIÐ ANNAN OPNUNARTÍMA þann dag sem á við.

6. Ef þú ert lokað ákveðinn dag getur þú búið til opnunartíma sem varir í eina mínútu, t.d. frá 02:00 til 02:01 (ef það er ekkert sett þá er flokkurinn opinn allan sólarhringinn).

7. Að lokum smellir þú á Vista (Save) til að uppfæra stillingar flokksins.


Þetta mun hafa áhrif á sýnileika flokksins á eTags, sjálfsafgreiðslukassa (Kiosk) og vefverslun (Store online). Þetta hefur hins vegar ekki áhrif á flokksstillingar fyrir POS (sölukerfið).