Auglýsingar á Noona markaðstorginu

Auglýsingar á Noona

Með auglýsingum á Noona getur þú komið þjónustu, viðburðum eða gjafabréfum á framfæri á markaðstorginu. Þú velur hversu miklu þú vilt eyða og á hvaða svæði auglýsingin á að birtast.

Í valmyndinni undir Markaðssetning finnur þú þrjá flipa:

  • Auglýsingaherferðir: Hér stillirðu tímabil, eyðslumörk og birtingarsvæði og velur auglýsingar fyrir herferðina.
  • Auglýsingasafn: Hér býrðu til auglýsingarnar sjálfar, með mynd, texta og áfangastað.
  • Innsýn: Hér sérðu birtingar, smelli og kostnað þegar herferðin er farin í gang.

1. Búðu til auglýsinguna

Farðu í Valmyndina -> Markaðssetning -> Auglýsingasafn og smelltu á Búa til fyrstu auglýsinguna.

Nafn

Þar setur þú inn nafn á auglýsingunni svo þú þekkir hana í auglýsingasafninu en aðeins þú getur séð þetta nafn.

Mynd

Smelltu á Bæta við mynd og veldu mynd fyrir auglýsinguna. Ráðlögð stærð er 1200 x 628 px (1,91:1) JPG eða PNG undir 5MB.

Texti yfir mynd

Þú getur bætt við stuttum texta sem birtist yfir myndinni sem er að hámarki 35 stafir. Þessi reitur er valfrjáls og má vera auður ef þú vilt sýna myndina eins og sér.

Lýsing

Skrifaðu stutta lýsingu á því sem þú ert að auglýsa að hámarki 65 stafir.

Takki

Smelltu á Velja undir Takki og veldu hvert auglýsingin á að vísa þegar smellt er á hana, til dæmis á prófíl fyrirtækisins, þjónustu, viðburð eða gjafabréf. Í Texti á takka getur þú sett inn texta sem er að hámarki 20 stafir. Textinn ætti að lýsa næsta skrefi, til dæmis "Bóka tíma".

Tungumál

Veldu tungumál auglýsingarinnar. Hún birtist aðeins fólki sem er með markaðstorgið stillt á því tungumáli. Ef þú vilt ná til fólks sem notar annað tungumál þarftu að búa til aðra auglýsingu fyrir það.

Síðan smellir þú á Vista.

Ef allar upplýsingar eru útfylltar kemur upp gluggi þar sem þú getur sent auglýsinguna í samþykktarferli.  Auglýsingar þurfa að fara í samþykktarferli áður en þær geta birst á markaðstorginu. 

Eftir að hún hefur verið samþykkt getur hún birst í auglýsingaherferð. Athugaðu: Það að vista auglýsingu setur hana ekki sjálfkrafa í birtingu. Hún þarf bæði að vera samþykkt og hluti af herferð.

Hérna er dæmi um uppsetta auglýsinga:

2. Búðu til auglýsingaherferð

Næst ferðu aftur í Valmyndina -> Markaðssetning -> Auglýsingaherferðir og smelltu á Ný herferð.

Upplýsingar

Sláðu inn heiti herferðar og veldu hvenær hún á að hefjast og enda.

Hefst: Veldu Strax eða upphafsdag. Ef þú velur Strax hefst herferðin þegar ein af auglýsingum hennar hefur verið samþykkt.

Endar: Veldu lok herferðarinnar. Herferð getur verið í gangi í allt að 90 daga frá því hún hefst.

Auglýsingar

Herferðin þarf að innihalda að minnsta kosti eina auglýsingu. Bættu við auglýsingunni sem þú vilt birta eða smelltu á Búa til auglýsingu til að útbúa nýja.

Stilltu fjárhagsáætlun

Undir Fjárhagsáætlun ákveðurðu hversu miklu þú vilt eyða.

  • Dagleg eyðslumörk: Settu hámark fyrir eyðslu á dag. Lágmarkið er 1.000 kr. á dag.

  • Heildar eyðslumörk: Þessi reitur er valfrjáls. Hér geturðu sett hámark á heildareyðslu herferðarinnar til að ljúka henni fyrr.

Án heildareyðslumarka ráðast heildarmörkin af daglegum eyðslumörkum og lengd herferðarinnar.

Dæmi: Ef dagleg eyðslumörk eru 1.000 kr. og herferðin stendur í 10 daga eru hámarkseyðslumörkin 10.000 kr. Raunkostnaður fer eftir birtingum og smellum.

Í uppsetningunni birtast einnig verð fyrir birtingar og smelli.

Veldu birtingarsvæði

Undir Hvar velurðu svæðið þar sem auglýsingarnar eiga að birtast.

  1. Sláðu inn staðsetningu í Miðja svæðis.

  2. Stilltu Radíus eða veldu eina af fyrirframgefnu fjarlægðunum.

  3. Skoðaðu kortið til að sjá hvaða svæði valið nær yfir.

Þéttara svæði eykur birtingarlíkur auglýsingarinnar innan þess. Breiðara svæði nær lengra.

Samþykktar og ósamþykktar auglýsingaherferðir

Hér sérðu ósamþykkta auglýsingaherferð:

Hér sérðu samþykkta auglýsingaherferð:

Þú getur bætt við fleiri auglýsingum undir Auglýsingasafn í valmyndinni:

Svona líta auglýsingar út á markaðstorginu:

3. Fylgstu með árangrinum

Þegar samþykkt auglýsing er farin að birtast á markaðstorginu geturðu farið í Markaðssetning → Innsýn til að fylgjast með árangrinum.

Þar sérðu:

  • Hversu oft auglýsingin hefur birst.
  • Hversu margir hafa smellt á hana.
  • Hversu mikið hún hefur kostað.

Þessar upplýsingar hjálpa þér að meta árangur herferðarinnar. Þú getur einnig bætt við inneign hvenær sem er.

4. Bæta við inneign

Ef auglýsingin er að ganga vel er hægt að bæta við inneigninni. Það er gert með því að fara í Valmyndina -> Markaðssetning -> Auglýsingaherferðir og smellir á Bæta við inneign. Inneignin er síðan rukkuð á næsta reikning.



Ekki hika við að hafa samband við okkur á spjallinu ef að eitthverjar spurningar vakna ❤️