Fyrir atvinnurekendur er mikilvægt að vera með góða yfirsýn yfir daginn. Heildaryfirlitið veitir upplýsingar um bókanir og netgreiðslur dagsins sem getur til dæmis verið gagnlegt til notkunar við uppgjör.
Upplýsingar í yfirlitinu
Yfirlitið sýnir eftirfarandi upplýsingar fyrir daginn:
- Fjölda bókana.
- Fjölda gesta.
- Fjölda gesta í hverja upplifun fyrir sig.
- Fjölda gesta í hvern matseðil fyrir sig.
- Fjölda fyrirframgreiddra bókana.
- Upphæð fyrirframgreiddra bókana.
Hvar finn ég heildaryfirlitið?
Þú finnur heildaryfirlit dagsins með því að fara undir bókunarlistann → bókanir → smella á örvarnar uppi í horninu.

Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.