Hér förum við yfir það skref fyrir skref hvernig stofna á klippikort í SalesCloud kerfinu. Byrjaðu fyrst á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is
1. Farðu í Products > Items
2. Smelltu á Add item og veldu Coupon
Settu inn viðeigandi upplýsingar fyrir stillingarnar á klippikortinu.
Basic Info
Title : Nafn á klippikorti (dæmi, 10 kaffibollar)
Description : Lýsing á klippikortinu, þessi texti birtist í netsöluviðmóti.
Price : Verð á klippikortinu
Tax : Veldu viðeigandi vsk flokk
Redeemable Items : Hér þarf að velja hvaða vörur í kerfinu er hægt að leysa út með notkun á klippikortinu.
Max redemptions : Hér ákveður þú hversu mörg "klipp" á að fá með klippikorts kóðanum. Fyrir 10 kaffibolla velur þú 10 hér.
Image : Hægt er að setja mynd sem kemur upp í netsöluviðmótinu.
Advanced Pricing
Location Prices : Hægt er að stilla vöruna þannig að hún hefur mismunandi verð eftir staðsetningu.
Availability
Hér er hægt að stýra því hvort að klippikortið eigi að koma upp á öllum mögulegum söluleiðum, Kioskum, netsölu eða eTags (QR kóðar).
Einnig er hægt að stýra því hvort að klippikortið eigi að vera aðgengilegt á öllum staðsetningum undir "All locations"
Í síðasta lagi er hægt að stilla klippikortið þannig að það sé bara til sölu á ákveðnum dögum.
Accounting
Hér er hægt að stilla Main Category fyrir talningu í skýrslum. Hægt að lesa betur um mun milli Main category og Category hér.