Frítímar

Hvað eru frítímar?

Ef þú vilt ekki að aðrir starfsmenn bóki á þig á vissum tíma, eða að viðskiptavinir geti bókað í gegnum Noona, þarftu að búa til frítíma.

Þegar þú vilt búa til frítíma, byrjar þú á því að smella á "Dagatal" sem staðsett er vinstra megin í Noona HQ.

Næst smellir þú á einhvern tíma í dagatalinu og "Nýr frítími".

Ef þú ert á réttum stað, tekur þessi valmynd á móti þér:


Undir Starfsmenn getur þú boðið samstarfsmönnum þínum með þér í þennan frítíma. Þetta er afar gott fyrir starfsmannafundi- eða skemmtanir. Sama gildir um Svæðin ef þú ert að notast við þau.

Næst velur þú hvenær þú vilt að frítíminn byrji og hvenær hann endi. "Allur dagurinn" takkinn er þægileg flýtileið til þess að velja það að frítiminn eigi að spanna allan daginn.

Undir 'Grunnupplýsingar' getur þú skrifað útskýringu á frítímanum, t.d. "Tími hjá lækni" eða "Hádegismatur". Eingöngu þú og aðrir sem hafa aðgang að Tímatal geta séð þessa útskýringu, ekki viðskiptavinir. 

Endurtakanlegir frítímar

Ef þú mætir alltaf seinna á föstudögum, eða mætir alla daga um hádegi, getur þú búið til frítíma sem endurtekur sig með reglubundnum fresti. Þannig þarft þú ekki að búa til sama frítímann aftur og aftur, heldur þarft einungis að búa hann til einu sinni 

Ef þú vilt búa til slíkan frítíma, smellir þú á Aldrei sem eru undir 'Endurtekning'. Þá birist eftirfarandi valmynd: 


Daglega

Með því að smella á daglega, annan hvern dag, þriðja hvern dag... getur þú valið daglega. 

Að lokum getur þú valið hvenær þú vilt að þessi endurtekning endi, en það er tilvalið ef þú ert á leiðinni í frí og vilt loka alla daga fram að ákveðinni dagsetningu


Vikulega

Ef þú mætir snemma á þriðjudögum, eða ert með mismunandi mætingartíma aðra hverja viku getur þú valið vikulega.

Þaðan velur þú hvaða daga þú vilt að endurtekningin eigi sér stað, og með hversu margra vikna fresti endurtekningin á að eiga sér stað. 


Ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að heyra í okkur í gegnum spjallbúbbluna eða senda okkur tölvupóst á hq@noona.is💛