Bankatenging fyrir kröfur úr SalesCloud

Það er hægt að senda kröfur beint úr sölukerfi SalesCloud með því að stofna til bankatengingar við annað hvort Íslandsbanka eða Landsbankann. 

Til að hægt sé að stofna kröfur þarf að óska eftir stofnun kerfisnotanda fyrir kröfutengingu en það er gert með því að senda póst á annað hvort 

Íslandsbanki : fyrirtaeki@islandsbanki.is

Landsbanki: ftmthjonustufulltruar@landsbankinn.is

____________________________________________________________

Pósturinn er eftirfarandi :

Góðan dag, 

Óska eftir að stofna kerfisnotanda fyrir [fyrirtækjaheiti], kt. [xxxxxx-xxxx] til þess að geta sent rafræna reikninga í gegnum kerfi SalesCloud.

Vinsamlegast sendið upplýsingar um neðangreint í öruggum skilaboðum og hafið salescloud@salescloud.is í CC.

  • Username / kerfisnotandi
  • Password / lykilorð kerfisnotanda
  • Kennitölu viðtakanda
  • Bankanúmer
  • Höfuðbók kerfisnotanda
  • Gjalddagi
  • Eindagi
  • Auðkenni

Bestu kveðjur, 

Þegar þessar upplýsingar liggja fyrir setjum við upp tenginguna og komum ykkur af stað í kröfustofnun í gegnum SalesCloud.