Tengja saman Noona HQ aðganga

Ef þú ert með aðgang að fleiri en einum Noona HQ aðgangi mælum við með að nota sama netfang á þeim öllum. Þannig getur þú auðveldlega skipt á milli aðganga án þess að þurfa að skrá þig út og inn í hvert skipti.

Það er gert með því að smella á fyrirtækjaheitið uppi í hægra horninu.

Þar sérðu alla aðgangana sem þú ert með aðgang að og getur auðveldlega flett á milli.

Athugið að ekki er hægt að tengja Noona HQ aðganga saman þannig að þeir deili gögnum eða stillingum. Þessi virkni gerir þér eingöngu kleift að skipta auðveldlega á milli aðganga.


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna ef eitthverjar spurningar vakna og/ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛