Ef starfsmaður eða fyrirtækið sjálft fer í tímabundið leyfi, til dæmis vegna fæðingarorlofs, sumarleyfis eða annarra aðstæðna, eru mismunandi leiðir í boði eftir því hvort aðeins einn starfsmaður er frá eða öll starfsemin lokar tímabundið.
Starfsmaður fer í leyfi
Ef einn starfsmaður fer í leyfi en fyritækið heldur áfram starfsemi er einfaldlega hægt að fela viðkomandi af dagatalinu. Þá verður starfsmaðurinn ekki lengur bókanlegur og ekki er lengur greitt fyrir hann í kerfinu.
Þetta er gert með því að fara í Valmyndina -> Starfsmenn -> smellir á viðkomandi starfsmann -> og tekur úr hakið "Birta á dagatali".

Þá er starfsmaðurinn undir "Falin á dagatali" og þú greiðir ekki lengur fyrir hann. Gögnin hans glatast ekki og þú getur hakað aftur í "Birta á dagatali" hvenær sem er og hann verður aftur bókanlegur á markaðstorginu.

Fyrirtækinu er tímabundið lokað vegna leyfis
Ef þú ert einyrki og þarft að loka stofunni/fyrirtækinu hjá þér tímabundið þá getur þú sagt upp áskriftinni með því að fara inn í stillingar → áskrift → breyta → skrolla niður og velja segja upp áskrift.
Eftir að áskriftinni hefur verið sagt upp birtst þú enn þá inn á Noona markaðstorginu þannig að ef þú vilt slökkva á netbókunum þarftu að gera eftirfarandi: fara í hliðarstikuna → prófíll fyrirtækis → smella á 'virkur' → smella á afvirkja prófíl.

Ef þú vilt vera ennþá inni á markaðstorginu þá getur þú sagt upp áskriftinni en sleppir því að afvirkja prófílinn en þarft að passa að setja frítíma í dagatalið hjá þér.
Við munum hætta að rukka fyrir áskriftinni frá og með deginum sem aðganginum er sagt upp. Aðgangurinn þinn eyðist ekki og heldur ekki neinar upplýsingar sem eru þar inni, svo ef að þú vilt eitthvern tímann koma aftur í áskrift er hægt stilla hann eins og hann var og þú heldur öllum upplýsingum😊
Gangi ykkur vel og ekki hika við að hafa samband í gegnum bláu spjallbúbbluna ef að þið hafið frekari spurningar ❤️