Bóka tíma

Að bóka tíma

Til að bóka tíma þarftu að:

  1. Smella á þann tíma sem þú vilt bóka á dagatalinu. T.d. hér vil ég bóka tíma á miðvikudegi kl 10 hjá Birnu.


  2. Fylla inn þær upplýsingar sem þú vilt. Nafn er nauðsynlegt. Símanúmer þarf ef þú vilt senda sms og email ef þú vilt að það sendist staðfesting um tímabókun á emaili. Ef viðskiptavinur hefur komið áður í tíma getur þú smellt á viðskiptavininn. 


  3. Velja þá þjónustu sem viðskiptavinurinn er að koma í.


  4. Smella á "Bóka tíma".

    Þá ertu búinn að bóka tímann í dagatalið.


Færa tíma

Þegar að tími hefur verið búinn til er alltaf hægt að færa hann til í dagatalinu. Þannig þarftu ekki að búa til nýjan tíma ef skipulagið breytist. Þegar þú smellir á tímann getur þú séð ofarlega til hægri "Færa" takkann:

Þegar þú smellir á hann færðu tímann sem lítinn reit sem fylgir músinni þinni. Þannig getur þú farið og valið nýja dagsetningu → smellt þar sem tíminn á að vera og hann mun hoppa þangað!

Prófum að færa tímann hennar Söru fram á föstudaginn kl 10, vikuna eftir:

 Þú getur líka sparað þér tíma og verið enn fljótari að færa tíma með því að hægri smella á þá og velja færa⏰

Eins og þú gætir hafa tekið eftir færðu upp valmöguleikann hvort þú viljir láta viðskiptavininn vita af því að tíminn hafi verið færður eða ekki. Með því að smella á "Færa og senda" sendir þú út tölvupóst og tilkynningu í Noona appið (ef viðskiptavinurinn er með það). Ef viðskiptavinurinn er hins vegar t.d. fyrir framan þig að biðja um að færa tímann getur verið óþarfi að senda út tilkynningu.


Afrita tíma

Þú getur á fljótlegan hátt bókað viðskiptavin aftur í sömu þjónustu með því að afrita tíma.

Það er gert á mjög svipaðan hátt og að færa tíma. Þú getur annað hvort smellt á tímann og valið "Afrita" eða hægri smellt á tímann og valið afrita þar.

Tökum dæmi að Sara sé búin í dömuklippingu og langar að koma aftur eftir 4 vikur. Við smellum þá á tímann hennar → veljum afrita → smellum á tímastikuna við hliðina á "Í dag" → Veljum "Eftir 4 vikur" → finnum lausan tíma í þeirri viku:



Endurteknir tímar

Ert þú með fastakúnna sem vilja eiga sinn tíma með ákveðnu millibili? Þá eru endurteknir tímar fullkomnir fyrir þig! 🙌
Þú velur tímann → Smellir á "Endurtaka" → Velur hversu ört endurtekningin er → Velur á hvaða dagsetingu endurtekningunni á að ljúka → Þegar það er komið sérðu hversu margar endurtekningarnar eru → "Staðfesta"

Í hægra horninu á endurteknum tímum kemur upp merki sem gefur til kynna að tíminn endurtekur sig.

Það er hægt að færa og eyða endurteknum tíma eins og venjulegum tíma. Eini munurinn er að núna færðu valmöguleika um hvort þú viljir að breytingin eigi bara við um þennan tíma eða allar framtíðar endurtekningarnar líka.

Að færa endurtekinn tíma:



Að eyða endurteknum tíma:


Ekki hika við að heyra í okkur ef þú hefur einhverjar spurningar, vangaveltur eða athugasemdir. Þú getur sent okkur skilaboð í gegnum spjallbúbbluna💛