Aukareitir eru frábær leið til þess að hafa sérstakan stað fyrir upplýsingar sem þú ert reglulega að skrifa hjá þér um viðskiptavini.
Aukareitir sem þú býrð til birtast þá hjá öllum viðskiptavinum, svipað og minnispunkta-reiturinn.
Til þess að búa til aukareit getur þú smellt á hvaða tímabókun sem er → velja "Búa til aukareit" → velur hvort aukareiturinn eigi að birtast vinstra meginn (aukareitur viðskiptavinar) eða hægra meginn (aukareitur tímabókunnar) → velja tegund aukareitar → "Vista"


Það eru nokkrar tegundir af aukareitum sem hægt er að búa til:
Stuttur texti
Hér er bara hægt að vera með eina línu af texta.
Langur texti
Stundum þurfum við að koma fyrir fleiri upplýsingum í reitinn. Með því að velja "Langur texti" verður reiturinn sjálfkrafa stærri.
Valkostir
Þú getur valið einn valkost úr lista af valkostum sem þú býrð til.
Tögg
Þú getur valið einn eða fleiri valkosti úr lista sem þú býrð til.
Ekki hika við að heyra í okkur ef þú hefur einhverjar spurningar, vangaveltur eða athugasemdir. Þú getur sent okkur skilaboð í gegnum spjallbúbbluna💛