Að skipta um kennitölu/eigendur

Hér verður farið yfir allt sem að þú þarft að gera í Noona HQ þegar skipt er um kennitölu eða eigendur


Það er ýmislegt sem þarf að huga að þegar skipt er um kennitölu hjá fyrirtækjum. Inni í Noona HQ eru það fjórir hlutir:

  1. Er rétt kennitala á Noona HQ áskriftinni?
  2. Er sölukerfið á réttri kennitölu?
  3. Eru skrópkröfur að greiðast á rétta kennitölu?
  4. Eru fyrirframgreiðslur að greiðast á rétta kennitölu?

Áskriftin

Byrjum á því að ganga úr skugga um að áskriftin sé skráð á rétt nafn og kennitölu. Þetta er gert með því að fara í Valmyndina → Stillingar → Áskrift → Breyta → Uppfæra upplýsingar → Breyta þar kennitölu fyrirtækis 👏



 Um næstu mánaðarmót mun reikningurinn þá berast á upplýsingarnar sem eru skráðar hér 💛

💡 Reikningar sem berast í byrjun hvers mánaðar eru fyrir áskriftinni mánuðinum áður, þannig er t.d. júní greiddur í byrjun júlí


Sölukerfið

Ef þú ert að nota sölukerfi Noona er nauðsynlegt að uppfæra allar upplýsingar þaar líka til þess að reikningar séu gefnir út á réttri kennitölu.

Við byrjum aftur á að fara í Valmyndina -> smella á Stillingar -> Afgreiðslukerfi ->Reikningsupplýisngar fyrirtækis og breytir þar þeim upplýsingum sem þarf.

*Uppfærðar upplýsingar munu síðan birtast strax á næsta útgefna reikningi.


Nýr posi

Ef þú ert með nýjan posa frá Landsbankanum, Straumi eða Teya sem þú æltar að tengja við sölukerfið þá er tvennt sem þú þarft að gera.

  1. Aftengja gamla posann
    Þetta er gert með því að fara í Valmyndina -> Stillingar -> Viðbætur -> Aftengja



  2. Tengja nýja posann
    Þetta er gert með því að fara aftur í Valmyndina -> Stillingar -> Viðbætur -> velja "Tengja" hjá þeim færsluhirði sem þú ert hjá.


    Ef þú ert hjá Teya þá setur þú inn netfang og lykilorð á Teya aðganginum þínum en ef þú ert hjá Landsbankanum setur þú inn Verifone User ID og Verifone API lykil en ef þú ert Straumi þá setur þú inn API key og Merchant ID. Þetta eru allt upplýsingar sem þú færð frá færsluhirðinum.

    Síðan ferðu í Valmyndina -> Stillingar -> Greiðsluleiðir og tengir posann þar inni.

Til þess að hægt sé að senda upphæðir beint í posann þarf hann að vera á svokallaðir kassakerfisstillingu eða pay at counter mode.


Skrópvörnin

Ef þú ert að nota skrópvörnina er nauðsynlegt að uppfæra upplýsingarnar þar til þess að skrópkröfur séu að greiðast á rétta kennitölu. Það þarf að búa til nýjan samning hjá Inkasso í gegnum hlekkinn hér (byrjaðu á að skrolla niður og velja þar "Skráning"):
https://www.inkasso.is/komdu-i-vidskipti/inkasso-noona/

Þegar búið er að fylla út umsóknina mun Inkasso senda ykkur tölvupóst með rafrænni undirskrift. Það getur tekið í kringum 1-3 daga.

Eftir að hafa skrifað undir rafrænt heyrir þú í okkur með því að senda skilboð í gegnum spjallbúbbluna eða senda tölvupóst á hq@noona.is og við uppfærum hana okkar megin.

Allar kröfur sem eru enn ógreiddar munu fara á gömlu kennitöluna,


Fyrirframgreiðslur

Fyrirframgreiðslurnar fara í gegnum færsluhirði og það þarf að stofna nýjan samning hjá þeim ef þú ætlar að uppfæra kennitöluna. Þú gerir það með því að fylla út þetta form:
https://noonaiceland.my.site.com/forms/s/saekjaumfaersluhirdingu

og setur í "Lýsing á rekstri" að þú sért að skipta um kennitölu og hefur gömul kennitöluna með. Við munum þá senda inn umsóknina til færsluhirðisins og þau hafa samband við þig í kjölfarið.


Þá ætti allt að vera klárt og fyrirtækið þitt tilbúið að starfa undir réttum eiganda/kennitölu 🚀

Ekki hika við að heyra í gegnum spjallbúbbluna í hægra horninu ef eitthverjar spurningar vakna 💛