Netbókanir upplifana í borðabókunum

Í Noona HQ getur þú sett upp viðburði/upplifanir sem viðskiptavinir geta bókað í gegnum á netinu. Það eru tvær megingerðir af reglum sem þú myndir setja upp.

  1. Upplifanir á ákveðinni dagsetningu og tíma
  2. Upplifanir sem eru í boði yfir ákveðiði tímabil

Hér fyrir neðan förum við í gegnum báðar stillingar skref fyrir skref.


Viðburðir á ákveðinni dagsetningu og tíma🕰️

Ef viðburður á t.d. að vera bókanlegur 31. desember kl 18 og 20 þá byrjar þú að stofna nýtt sniðmát fyrir reglusett 

Þar setur þú upp reglu fyrir netbókanir með því að smella á +Bæta við

  • Þar myndir þú stilla að tímasetningin á viðburðinum sé frá 18:00 til 18:15
  • Passa að velja rétt borð
  • Velja upplifunina/viðburðinn sem þessi regla tengist

Síðan myndir þú búa til alveg eins reglu nema tímasetningin væri frá 20:00 til 20:15 og þá myndi sniðmátið á reglunni líta svona út:

Til þess að upplifunin sé einungis bókanlegur 31. desember myndir þú síðan smella á þrjá punktana hægra megin á sniðmátinu  -> Bæta við tímabili -> og setja upphafs og loka dagsetninguna sem 31. desember.

Þá kemur þetta svona út í bókunarferlinu:


Upplifanir á ákveðnu tímabili📆

Hér tökum við dæmi um upplifun sem á að vera bókanlegur allar helgar í nóvember frá kl 14 til 20.

Þá byrjar þú að stofna nýtt sniðmát fyrir reglusett 

Þar setur þú upp reglu fyrir netbókanir með því að smella á +Bæta við 

  • Þar myndir þú stilla að tímasetningin á upplifuninni sé frá 14 til 20:15
  • Passa að velja rétt borð
  • Velja upplifunina/viðburðinn sem þessi regla tengist

Til þess að upplifunin sé einungis bókanlegur um helgar í nóvember myndir þú síðan smella á þrjá punktana hægra megin á sniðmátinu  -> Bæta við tímabili -> og setja upphafs dagsetninguna sem 1. nóv og loka dagsetninguna sem 30. nóv og velja einungis laugardaga og sunnudaga.

Þá kemur þetta svona út í bókunarferlinu á öllum laugardögum og sunnudögum í nóvember:


Lokun á aðrar bókanir á meðan upplifun er í gangi

Ef þú vilt vera með lokað á hefðbundnar bókanir á meðan upplifunin er í gangi þá myndir þú stofna annað reglusett sem skilgreinir lokunina.

Til að loka á venjulegar bókanir á meðan Helgar Pop-up viðburður er í gangi á laugardögum og sunnudögum í nóvember, þarf að búa til sérstakt sniðmát fyrir netbókanir sem inniheldur engan viðburð.

Síðan þarf að passa að stilla aftur dagsetningarnar á þessari reglu með því að smella á þrjá punktana hægra megin á sniðmátinu.

Þá lítur dagurinn svona út í bókunarferlinu á öllum laugardögum og sunnudögum í nóvember:


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna eða í tölvupósti á hq@noona.is ef einhverjar spurningar eða pælingar vakna💛