Við bjóðum upp á nokkrar mismunandi greiðslulausnir sem henta ólíkum rekstri og þörfum fyrirtækja. Hægt er að taka vð greiðslum í gegnum posa, bjóða upp á netgreiðslur við bókun og senda greiðsluhlekk beint í síma viðskiptavina.
Greiðslulausnir í boði
Til þess að vera með greiðslulausnir í Noona þarf að byrja á því að gera samning við færsluhirði. Færsluhirðarnir sem við erum í samstarfi við eru Landsbankinn, Straumur og Teya. Þú getur sótt um hjá þeim með því að smella hér í gegn og fyllir út formið sem kemur upp. Þar setur þú inn viðeigandi upplýsingar og velur hvaða greiðslulausnir þú vilt bjóða upp á.
Greiðslulausnirnar sem eru í boði eru...
- Posatenging við sölukerfið.
- Netgreiðslur við bókun.
- Noona Paylink - greiðsluhlekkur sem er sendur í síma viðskiptavina.
Posatenging
Með posatengingu tengist posinn beint við sölukerfið sem einfaldar afgreiðslu og dregur úr líkum á innsláttarvillum þar sem upphæðin fer beint úr sölukerfinu yfir í posann.
Lestu meira um það hvernig þú tengir posa frá Verifone/ Landsbankanum við sölukerfið.
Lestu meira um það hvernig þú tengir posa frá Straumi við sölukerfið.
Lestu meira um það hvernig þú tengir posa frá Teya við sölukerfið.
Netgreiðslur
Með netgreiðslum geta viðskiptavinir þínir greitt fyrir þjónustuna þegar þeir bóka tíma í gegnum Noona. Boðið er upp á þrjár mismunandi útfærslur:
Full fyrirframgreiðsla
Viðskiptavinur greiðir alla upphæð bókunarinnar við bókun.
Valkvæð fyrirframgreiðsla
Viðskiptavinur getur valið hvort hann greiði fyrirfram eða greiði á staðnum þegar hann mætir.
Staðfestingarjald
Viðskiptavinur greiðir fyrirfram ákveðið staðfestingargjald til að staðfesta bókunina. Eftirstöðvar greiðast síðan á staðnum.
Lestu meira um netgreiðslur með því að smella hér.
Noona Paylink
Noona Paylink er greiðslulausn sem gerir þér kleift að rukka viðskiptavini með því að senda rukkun beint í símann þeirra með einum smelli.
Lestu meira um Noona Paylink með því að smella hér.
Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna eða í tölvupósti á hq@noona.is ef einhverjar spurningar vakna💛