Áður en þú stofnar fyrstu gjafabréfsvöruna skaltu ganga úr skugga um að búið sé að setja upp sölurás fyrir Gjafabréf (Gift Card Channel) og greiðsluleið fyrir gjafakort (Gift Card Payment Method). Þetta er gert af starfsfólki SalesCloud.
Hér eru skrefin sem þú tekur til að stofna gjafabréf en fyrst þarftu að skrá þig inn á admin.salescloud.is.
1. Farðu í Products > Items
2. Smelltu á Add Item og svo Giftcard
Settu inn viðeigandi upplýsingar fyrir stillingarnar á gjafabréfinu
Basic Info
Title : Nafn gjafabréfsins (ef gjafabréfið er selt í gegnum netverslun þá mælum við með því að setja upphæðina í titilinn, dæmi Gjafabréf 5000kr)
Description : Lýsing á gjafabréfinu (þessi texti birtist í netsölunni og á PDF afritinu af gjafabréfinu sem sendist á viðskiptavin við kaup)
Categories : Veldu viðeigandi flokk ef gjafabréf á að vera selt í gegnum netverslun
Price : Verð gjafabréfsins
Tax : Veldu viðeigandi vsk flokk
Validity : Gildistími gjafabréfs er alltaf stillt á 2 ár en hægt er að breyta því hér.
Image : Mynd sem birtist í netsölu, POS og á PDF afritinu.
"Sendi electronic gift card to customer after purchase" - stilling sem sér til þess að viðskiptavinurinn fær gjafabréfskóðann sendann í tölvupósti við kaup. Ef það er ekki hakað við þetta þá fer enginn tölvupóstur á kaupandann.
Advanced price
Sale Price : til að setja inn útsöluverð
Exclude Discount : ef þú vilt að gjafabréfið getið ekki fallið undir afslætti eins og coupon kóða.
Location Prices : ef að verð á gjafabréfinu á að vera mismunandi á milli staðsetninga.
Availability
Hér er hægt að stýra því hvort að gjafabréfið eigi að koma upp á öllum mögulegum söluleiðum, POS appinu á staðnum, Kioskum, netsölu eða eTags (QR kóðar).
Einnig er hægt að stýra því hvort að gjafabréfið eigi að vera aðgengilegt á öllum staðsetningum undir "All locations"
Í síðasta lagi er hægt að stilla gjafabréfið þannig að það sé bara til sölu á ákveðnum dögum.
Accounting
Hér er hægt að stilla Main Category fyrir talningu í skýrslum. Hægt að lesa betur um mun milli Main category og Category hér.
Smelltu á SAVE