Hvernig virkar leitin á Noona markaðstorginu?
Leitin á Noona markaðstorginu hjálpar viðskiptavinum að finna fyrirtæki og þjónustu sem hentar því sem þeir leita að. Til þess að auka líkurnar á að fyrirtækið þitt birtist í viðeigandi leitarniðurstöðum er mikilvægt að huga að upplýsingunum á prófílnum þínum.
Leitin á Noona.is
Þegar viðskiptavinur leitar á Noona.is leitar leitarvélin í:
- Nafni fyrirtækisins
- Textanum sem skráður er undir Lýsing / Um okkur
Við mælum því með að lýsingin innihaldi þau orð sem þú vilt að fyrirtækið þitt finnist undir. Til þess að bæta við lýsingu á prófílinn þinn getur þú farið í Valmyndina -> Prófíll fyrirtækis -> Breyta prófíl -> Lýsing.

Leitin í Noona appinu
Almenna leitin í Noona appinu virkar á sama hátt og leitin á Noona.is. Þar er leitað í nafni fyrirtækisins og textanum undir Lýsing / Um okkur.
Í appinu er einnig hægt að leita að ákveðnum þjónustum í gegnum hraðbókun, sem er hnappurinn í miðjunni neðst í appinu. Þar geta notendur fundið fyrirtæki í nágrenninu sem bjóða upp á þjónustuna sem þeir leita að og eiga lausan tíma með stuttum fyrirvara.
Til þess að þjónusturnar þínar birtist í viðeigandi niðurstöðum í hraðbókun mælum við með að velja rétta þjónustutegund fyrir hverja þjónustu í Noona HQ.
Nánari upplýsingar um þjónustutegundir og hvernig þær eru stilltar má finna í þessari hjálpargrein.
Þá er það ekki fleira í bili, en ekki hika við að heyra í okkur ef einhverjar spurningar vakna💛