Í Noona HQ er hægt að senda út sjálfvirkar SMS áminningar til viðskiptavina. Í þessari hjálpargrein förum við yfir það hvar í kerfinu þú getur skoðað hvort viðskiptavinurinn hafi fengið skilaboðin eða ekki.
Það er hægt að skoða hvaða skilaboð hafa farið út, hvenær þau voru send, á hvaða símanúmer þau voru send og hvað stóð í þeim með því að fara í valmyndina -> skilaboð -> staða.

Þar getur þú flett upp símanúmeri hjá viðkomandi og séð hvort skilaboðin hafa verið send úr kerfinu.

Ef skilaboðin eru með bláu haki þá gefur það til kynna að skilaboðin hafa verið send úr kerfinu í síma viðkomandi.

Ef skilaboðin eru með rauðu merki þá gefur það til kynna að skilaboðin hafa ekki borist í síma viðkomandi.

Það er einnig hægt að skoða hvort skilaboð hafa verið send út með því að opna tímabókunina í dagatalinu -> breytingasaga

Þar er hægt að sjá hvort og hvenær sms skilaboðin voru send út fyrir tiltekinni bókun:
![]()

![]()
Sumir símar í dag eru með stillingar sem geta takmarkað eða blockað móttöku hópskilaboða. Ef viðskiptavinur fær ekki SMS skilaboð en kerfið sýnir að hann fái skilaboðin þá gæti verið að slík stilling sé virk í símanum hans.
Önnur ástæða fyrir því að SMS skilaboð berast ekki til viðskiptavinar getur verið að slökkt hefur verið á SMS áminningum á viðskiptamannaspjaldinu. Til að laga þetta þarf einfaldlega að haka aftur við þann valkost.

Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.