Ef þú ert með fleiri en einn Noona aðgang og vilt birta stofurnar þínar saman á vefsíðunni þinni eða inni á Noona appinu er lítið mál að tengja útibúin.
Hvernig bý ég til nýtt útibú?
Til þess að búa til nýtt útibú sem er sjálfkrafa tengt útibúinu sem þú ert nú þegar með ferð þú í Valmyndina -> Fyrirtækið -> Útibú -> Upplýsingar um útibú -> Nýtt útibú.

Við það stofnast nýr Noona HQ aðgangur sem þarf að setja upp frá grunni.
Ef þú hefur nú þegar stofnað nýjan Noona HQ aðgang getur þú einnig smellt á þrjá punktana á útibúinu -> Move to chain

og valið þar hvaða útibúi þú vilt sameinast.

Þegar þú ert búin/n að samein útibúin þá mælum við með að setja inn upplýsingar um keðju, bæði nafn og myndir.



Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna ef eitthverjar spurningar vakna og/ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛