Fyrir bókarann

Sölukerfi Noona er frábær leið til þess að vera með allt á einum stað en það getur verið flókið að átta sig á því hvað á að senda á bókarann.

Með sölukerfi Noona getur þú skoðað 12 mismunandi tegundir af skýrslum og getur einnig nýtt þér ítarlega leit til þess að fá akkúrat upplýsingarnar sem að þig vantar fyrir hvern starfsmann eða verktaka.

Til þess að hafa allt sem einfaldast mælum við með að búa til sér aðgang fyrir bókarann og nota hlutverkastillingarnar til þess að gefa bara þær upplýsingar sem að þarf. Við munum fara vel yfir hvernig það er gert hér að neðan 😊


Senda skýrslur

Til þess að finna skýrslurnar er byrjað á því að fara í Valmyndina -> Sala -> Skýrslur.

Það er algengast að senda skýrslurnar "Sala eftir starfsmönnum" og "Sala eftir greiðsluleiðum" eftir því hversu nákvæmar skýrslurnar þurfa að vera.

Þegar að "Sala eftir starfsmönnum" er skoðuð er hægt að fara í ítarlega leit til þess að velja hvaða starfsmenn eru sýndir.
Því næst er tímabilið valið með því að smella á  stikuna sem að sýnir núverandi mánuð.

Þegar að rétt tímabil, útgefandi og/eða starfsmaður hefur verið valinn er smellt á "Sækja skýrslu" sem að hleður skýrslunni niður sem pdf skjali. Skjalið þarf svo að senda áfram til bókarans og þá er allt klárt 😄✨


Búa til aðgang fyrir bókarann

Til þess að búa til aðgang fyrir bókarann þá er byrjað á því að bút til nýtt hlutverk. Það er gert undir Stillingar -> Hlutverk -> + Bæta við hlutverki

Þar setur þú inn heiti hlutverks sem getur verið t.d. Bókari.

Þá er komið að því að stilla bókara hlutverkið. Það eina sem bókarinn þarf er aðgangur að sölu og skýrslum. Því mælum við með að haka í eftirfarandi dálka:

Núna er hlutverkið tilbúið og næst á dagskrá að gefa bókaranum aðgang. Þetta er gert á sama hátt og þegar að nýjum starfsmönnum er bætt við: farðu í Skipulag → Starfsmenn → + Bæta við
Settu inn nafn og netfang bókarans → Setja hlutverk sem "Bókari" eða það sem að þú kallaðir nýja hlutverkið í skrefinu hér að ofan → passa að taka hakið af "Birta á dagatali" 


Ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna ef að eitthverjar spurningar vakna ❤️💬