Þjónustutegundir auka sýnileika þinn inn á Noona markaðstorginu og hjálpar okkur að tengja þig við viðskiptavini sem leita af þeim þjónustum sem þú býður upp á.
Hvernig virka þjónustutegundir?
Þjónustu-tegundir auka sýnileika þinn á markaðstorginu, sérstaklega í hraðleitinni (hnappurinn í miðjunni neðst í Noona appinu).
Notendur Noona nota hraðleitina til að finna fyrirtæki í grendinni sem bjóða upp á þá þjónustu sem þeir eru að leitast eftir og eru með lausan tíma með stuttum fyrirvara.
Þjónustutegundir hjálpa okkur að vita hvaða þjónustur þú bíður upp á. Þannig ef þú merkir allar þínar þjónustur með þjónustutegund þá gerir þú það mun líklegra að Noona notandi finni þitt fyrirtæki í hraðleitinni þegar hann leitar eftir þjónustu sem þú bíður upp á.
Hvernig set ég upp þjónustutegundir?
- Þú byrjar á því að fara í Valmyndina sem þú finnur upp í vinstra horninu.
- Ferðu undir skipulag og smellir á þjónustur.
- Velur þjónustuna í þjónustulistanum þínum eða stofnar nýja þjónustu.
- Smellir á flipann undir tegund þjónustu og velur hvað lýsir þinni þjónustu best.

Tökum dæmi:
Þjónustan þín heitir t.d. "Litun á augnhár og augabrúnir" en ég leita eftir "litun og plokkun" í hraðleitinni. Ef þú ert búin að merkja þjónustutegundina á þjónustuna þína getum við bent notandanum á þitt fyrirtæki þar sem þjónustutegundin tengir saman leit notandans við þjónustuna þína. Ef þú værir ekki búin að merkja þjónustutegundina er það ekkert víst að við myndum fatta að "Litun á augnhár og augabrúnir" sé svipuð þjónusta og "litun og plokkun".
Ef þú finnur ekki þjónstutegund við hæfi veldu þá “Óskráð”. Við endurskoðum reglulega þjónstutegundir og búum til nýja flokka til að þjóna þínum þörfum betur.
Þá er það ekki fleira í bili, en ekki hika við að heyra í okkur ef einhverjar spurningar vakna💛