Að endurgreiða netgreiðslu

Þegar greiðsla fer í gegnum netsölu þá er hægt að endurgreiða í gegnum bakenda kerfisins. 

Byrjaðu á að skrá þig inn á admin.salescloud.is

1. Í valmyndinni vinstra megin veldu Sales > Payments

2. Finndu greiðsluna sem á að endurgreiða í listanum þar. Hægt er að filtera eftir upphæð og dagsetningu. 

3. Smelltu á greiðsluna þegar hún er fundin og þá koma upp nánari upplýsingar um greiðsluna hægra megin á skjánum. Þar efst eru tveir hnappar "Cancel" og "Credit" sem eru notaðir til endurgreiðslu

4. Þegar "Cancel" er valinn þá er greiðslan endurgreidd að fullu. 

5. Þegar "Credit" er valið þá er hægt að velja þá upphæð sem þú vilt endurgreiða, semsagt endurgreiða bara hluta úr greiðslunni. 

Athugið - það getur tekið allt að 5 virka daga fyrir greiðsluna að birtast á kortayfirlit kaupanda.