Hægt er að stofna Coupon kóða (afsláttarkóða) fyrir viðskiptavini sem hægt er að nýta í gegnum netsölu, eTags og Kioskana.
Byrjaðu á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is
1. Farðu í Promotions > Coupons
2. Smelltu á Create One
3. Stillingunum er stillt upp í fjóra hluta
- Basic Info
- Limitations
- Redemptions
- Time Settings
4. Undir Basic Info þarftu að fylla út öll þrjú svæðin
Code : Þú getur annað hvort búið til þinn eigin afsláttarkóða eða látið kerfið búa til handahófskenndann kóða með því að smella á hnappinn hægra megin við reitinn.
Name : Nafn á afsláttarkóða sem birtist í körfu viðskiptavinar og á kvittun
Description : Lýsing á afsláttarkóða sést eingöngu í innra kerfinu og er ekki eitthvað sem birtist notanda.
5. Undir Limitations velur þú hvernig þú vilt takmarka kóðann.
Coupon Item : Ef það er búið að stofna Coupon Item þá er það tengt við afsláttarkóðann hér. Hægt er að skoða betur notkun á Coupon Item í þessari hjálpargrein hér
Locations : Ef það eru fleiri en ein staðsetning þá er hægt að láta kóðann bara virka á ákveðnum staðsetningum.
Customer : Hægt er að tengja afsláttarkóðann við ákveðinn viðskiptavin.
Til að hægt sé að velja þessar takmarkanir, Coupon Item, Location og Customer, þá þarf þetta að vera nú þegar til í kerfinu.
6. Undir Redemptions skilgreinir þú hversu oft má nota afsláttarkóðann og hvaða afslátt hann veitir.
Max redemption : Skildu reitinn eftir auðann ef afsláttarkóðinn má nota ótakmarkað.
Percent off : skilgreindu hversu mikinn prósentuafslátt kóðinn á að veita.
7. Undir Time Settings getur þú stillt gildistíma afsláttarkóðans.
Active from > Active to : Ef kóðinn á bara að gilda yfir ákveðið tímabil, eina helgi, viku eða mánuð þá er það stillt hér.
Weekdays active : Hér er hægt að stilla afsláttarkóðann þannig að hann virkar bara á ákveðnum vikudögum.
Active Hours : Hér er hægt að stilla afsláttarkóðann þannig að hann virkar bara á ákveðinni tímasetningu, milli 16-18 sem dæmi.