Það er ekki bara hægt að nýta Noona HQ til þess að senda út áminningarskilaboð á viðskiptavini. Í þessari hjálpargrein verður farið yfir hvernig þú getur nýtt þér SMS valmöguleikana í Noona HQ til fulls 🤩
Áminningarskilaboð
Áminningar SMS fara út daginn áður en viðskiptavinur á bókaðan tíma (24 klst fyrir). Venjuleg áminningarskilaboð líta svona út:
Sara, tíminn þinn er klukkan 14:00 á morgun 09.07
- Afbokanir: 528-0080
- Noona neglur
Hér á viðskiptavinurinn Sara bókaðan tíma hjá fyrirtækinu Noona neglur.
Ef að skrópvörnin er virk mun bætast við neðst í skilaboðin:
Ath. skrop getur leitt til gjalds
Það er einnig hægt að breyta því sem stendur í skilaboðunum og breyta hvenær þau eru send út með því að sérsníða þau. Það er gert með því að fara í Valmyndina -> Skilaboð -> Áminningar.

SMS herferðir
Það er einnig hægt að senda út SMS á stóran hóp viðskiptavina í einu. Það er gert með því að fara í Valmyndina -> Skilaboð -> Hópskilaboð.

Hvernig get ég verið viss um að skilaboðin hafi verið send út?
Það er hægt að skoða stöðuna á SMS skilaboðum með því að fara í Valmyndina -> Skilaboð -> Staða. Þú getur einnig séð þetta í tímabókuninni sjálfri undir "Breytingasaga".


Senda skilaboð á einn viðskiptavin
Svo er alltaf hægt að nota Noona HQ til þess að senda skilaboð á ákveðinn viðskiptavin.
Þú gerir það með því að finna tímabókun viðskiptavinarins á dagatalinu -> ýta á bókunina -> og smella á "SMS" undir valinn tími.

Gangi ykkur vel og ekki hika við að hafa samband í gegnum bláu spjallbúbbluna ef að þið hafið frekari spurningar ❤️