Að stofna nýja pöntun í SalesCloud

Hægt er að stofna pöntun á hq.salescloud.is. Það eru tvær mismunandi leiðir til þess sem við förum betur yfir hér fyrir neðan. 

Í báðum tilfellum er verið að setja pöntun á viðskiptavin sem þarf að vera skráður í kerfinu áður en að pöntun er búin til. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um stofnun viðskiptavinar hér.

Að stofna pöntun á viðskiptavinaprófíl

1. Í valmyndinni vinstra megin getur þú valið Sales > Customers

2. Finndu réttan viðskiptavin og smelltu á hann

3. Veldu Orders > Add Order


4. Veldu rétta sölurás (channel) og smelltu á "Create Order"

5. Inn í pöntuninni velur þú "Add Line Item" til að bæta við vörulínum. 

6. Þegar pöntunin er klár þá velur þú viðeigandi greiðslumáta uppi í hægra horninu eða sendir út Paylink. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um Paylink virknina hér


Að stofna pöntun í Orders

1. Í valmyndinni vinstra megin velur þú Sales > Orders

2. Efst í hægra horninu velur þú "New Order"

3. Veldu réttan viðskiptavin og sölurás (channel) og smelltu svo á "Create Order"

4. Nú ertu komin í pöntunina og bætir við vörulínum með því að smella á "Add Line Item" sem er hægra megin fyrir miðjum skjá.

5. Þegar pöntunin er klár þá velur þú viðeigandi greiðslumáta uppi í hægra horninu eða sendir út Paylink. Hægt er að sjá nánari upplýsingar um Paylink virknina hér