Þegar peningaskúffan opnast ekki

Það fyrsta sem við byrjum á er að athuga ljósin efst á peningaskúffunni. Er það blátt eða rautt? Blikkar það eða logar það stöðugt?

  1. Rautt ljós – logar stöðugt: Prentarinn vinstra megin hefur ekki lokast almennilega. Ýttu á hann til að ganga úr skugga um að hann sé alveg lokaður.
  2. Rautt ljós – blikkar: Prentarinn vinstra megin er pappírslaus.
  3. Blátt ljós – logar stöðugt: Peningaskúffan er með rafmagn og tilbúin til tengingar.
  4. Ekkert ljós: Peningaskúffan fær ekkert rafmagn.

Ef bláa ljósið logar stöðugt

Peningaskúffan tengist spjaldtölvunni í gegnum Bluetooth. Í Salescloud appinu ætti að sjást skýrt hvort tenging sé komin á.

Efst í hægra horninu sérðu stöðuna „Connecting“ eða „Connected“, sem segir til um hvort peningaskúffan og spjaldtölvan séu tengdar.

Ef staðan helst á „Connecting“ skaltu prófa eftirfarandi:

  1. Endurræstu peningaskúffuna með því að slökkva á henni með rofanum neðan á vinstri hlið skúffunnar og kveikja síðan aftur.
  2. Lokaðu Salescloud POS appinu með því að ýta á línurnar þrjár neðst vinstra megin á spjaldtölvunni og strjúka Salescloud appinu upp.
  3. Opnaðu Salescloud POS appið aftur.

Í langflestum tilfellum ætti þetta að koma tengingunni aftur á.

Ef þetta vandamál kemur upp ítrekað skaltu hafa samband við okkur í síma 528-0080. Hugsanlega þarf að uppfæra hugbúnaðinn í peningaskúffunni.