Það er hægt að segja upp áskriftinni með því að fara inn í stillingar → áskrift → breyta → skrolla niður og velja segja upp áskrift.


Eftir að áskriftinni hefur verið sagt upp birtst þú enn þá inn á Noona markaðstorginu þannig að ef þú vilt slökkva á netbókunum þarftu að gera eftirfarandi: fara í hliðarstikuna → prófíll fyrirtækis → smella á 'virkur' → smella á afvirkja prófíl.

Við munum hætta að rukka fyrir áskriftinni frá og með deginum sem aðganginum er sagt upp. Aðgangurinn þinn eyðist ekki og heldur ekki neinar upplýsingar sem eru þar inni, svo ef að þú vilt eitthvern tímann koma aftur í áskrift er hægt að taka aðganginn upp alveg eins og hann var 😊
Við viljum gjarnan fá að heyra frá þér ef að það var eitthvað sérstakt sem hafði áhrif á ákvörðunina þína. Allar ábendingar hjálpa okkur að bæta og þróa áfram Noona HQ❤️
Takk kærlega fyrir að vera hluti af samfélaginu okkar.
Ekki hika við að hafa samband við okkur á spjallinu ef að eitthverjar spurningar vakna ❤️