Sérsniðnar greiðsluleiðir veita þér meiri sveigjanleika í sölukerfinu en með þeim geturðu stofnað þína eigin greiðslumáta.
Hvar stilli ég greiðslumáta?
- Þú byrjar á því að fara í valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
- Skrollar neðst niður og smellir á stillingar.
- Ferð undir sala og smellir á greiðsluleiðir.
Bæta við greiðslumáta
- Smellir á ný greiðsluleið.
- Setur titil á greiðslumátann.
- Velur tegund greiðslumáta sem ákvarðar táknið sem birtist hjá greiðslumátanum í sölukerfinu.
- Staðfesta

Ef þú vilt taka út eða breyta greiðslumáta geturðu smellt á viðkomandi greiðslumáta og tekið hakið af sýna í sölukerfinu eða breytt titlinum.
Raða greiðslumáta
Þú getur raðað greiðsluleiðunum þínum til að stuðla að betri upplifun við afgreiðslu. Röðin sem þú velur er sú röð sem greiðsluliðirnar birtast í, í sölukerfinu.
Til þess að breyta röðinni á greiðslumátunum heldur þú inni þremur strikunum á hverjum greiðslumáta fyrir sig og færir til röðina.

Dæmi um notkun
Rannveig – nýr greiðslumáti fyrir ákveðna greiðsluleið
Rannveig rekur hundasnyrtistofu og býður viðskiptavinum sínum að greiða með Síminn Pay Léttkaup. Í stað þess að nota almennan greiðslumáta í sölukerfinu stofnaði hún nýjan, sérsniðinn greiðslumáta sem er eingöngu ætlaður fyrir Síminn Pay Léttkaup. Þannig fær hún betri yfirsýn yfir reksturinn, greiðsluleiðir og tekjur.
Jóhann – fjarlæging greiðslumáta til að einfalda ferla+
Jóhann rekur sálfræðistofu og vill ekki bjóða upp á greiðslu með millifærslu. Hann fjarlægði því greiðslumátann millifærsla úr sölukerfinu. Með því tryggir hann að starfsfólk taki einungis við þeim greiðsluleiðum sem stofan býður upp á.
Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.