Hvernig get ég séð stöðu á skrópkröfu

Þú getur fundið stöðuna á skrópkröfum með því að fara í Valmyndina -> Skipulag -> Skrópvörn.

Á skrópvarnarsvæðinu má finna lista yfir allar skrópkröfur sem þú hefur látið stofna í gegnum Noona HQ. Undir dálkinum Staða er staða kröfunnar skilgreind.

  • Í vinnslu þýðir að beðið hefur verið um að stofna kröfuna.
  • Í heimabanka merkir að krafan hefur verið stofnuð. Viðtakandi getur séð og greitt kröfuna í heimabanka sínum þegar þessari stöðu hefur verið náð.
  • Borgað þýðir að krafan hefur verið greidd.
  • Fellt niður gefur til kynna að hætt hafi verið við kröfuna, hún felld niður.


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna spurningar vakna og/ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛