Endurgreiðsla gjafa- og klippikorta

Það eru tvær leiðir til þess að selja gjafabréf og klippikort:

1. Í gegnum sölukerfið

2. Á netinu í gegnum Noona appið eða noona.is

Endurgreiða gjafabréf eða klippikort sem var keypt á netinu

Þú getur endurgreitt allar netgreiðslur í kerfinu með því að fara í Sala > Netgreiðslur > Finna gjafabréfakaupin sem þarf að endurgreiða > Endurgreiða.


Til þess að viðskiptavinurinn geti ekki notað gjafabréfið þá þarf einnig að eyða því úr gjafabréfalistanum. Það er gert með því að fara í Valmyndina -> Sala -> Gjafabréf.

Þar finnur þú gjafabréfið sem þú ætlar að eyða -> smellir á þrjá punktana hægra megin á skjánum -> Eyða gjafabréfi.

Ef þú ert að nota sölukerfið hjá okkur þá er einnig hægt að eyða gjafabréfinu með því að ógilda reikninginn sem stofnaðist þegar viðskiptavinurinn keypti það á netinu. Það er gert með því að fara í Sala > reikningar > finna reikninginn fyrir gjafabréfinu > ógilda.
Eftir að það hefur verið gert þá hefurgjafabréfinu verið eytt úr gjafabréfalistanum.



Endurgreiða gjafabréf og klippikort sem eru keypt í gegnum sölukerfið

Gjafabréf og klippikort sem hafa verið keypt í gegnum sölukerfið þarf alltaf að endurgreiða handvirkt í gegnum posann sjálfan eða með millifærslu ykkar megin. Til þess að afstemma bókhaldið og koma í veg fyrir að viðskiptavinurinn geti notað gjafabréfið í framtíðinni þarf að  finna og ógilda sölureikninginn fyrir því. Það er gert með því að fara í Valmyndina -> Sala -> Reikningar -> opnar tiltekinn reikning -> Ógilda reikning.


Við það eyðist gjafabréfið sjálfkrafa úr gjafabréfalistanum og viðskiptavinurinn getur ekki notað það lengur. 


Smelltu hér til þess að læra meira um gjafabréfin ✨

Þá er það ekki fleira í bili en ekki hika við að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna 💜