Hvað eru svæði?

Svæði í Noona HQ

Svæði eru dagatöl sem hægt er að bóka í stað starfsfólks. Þau henta vel þegar bókun á þjónustu krefst þess að ákveðið rými eða búnaður sé laus.

Algengt er að svæði séu t.d. 

  • Lyftur á bílaverkstæði
  • Meðferðarherbergi á snyrtistofu
  • Tæki eða annar bókanlegur búnaður

Svæði koma í veg fyrir að búnaður eða herbergi séu tvíbókuð.

Hvernig stofna ég svæði?

Til þess að stofna svæði byrjar þú á því að fara í Valmyndina -> Svæði -> Búa til svæði.

Þegar svæði hefur verið stofnað þá birtist það sem dagatal í kerfinu.

Hvernig tengi ég þjónustu við svæði?

Til að hægt sé að bóka þjónustu á svæðið þarf að skilgreina hvaða þjónustur eiga að vera bókanlegar á það.

Það er gert með því að fara í Valmyndina -> Þjónustur -> smellir á tiltekna þjónustu -> Netbeiðnir og undir netbeiðna stillingar hakar þú í "þjónusta þarf svæði" og velur viðeigandi svæði.

Í netbeiðna stillingunum er einmitt hægt að stilla hvort þjónustan þurfi bæði starfsmann og svæði eða bara annað hvort.


Ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband í gegnum spjallbúbbluna. Hlökkum til að heyra frá þér! 💛