Upplifanir í borðabókunum Noona HQ

Búa til upplifunina

Fyrsta skref er að búa til upplifunina:

  1. Smellir á valmydnina (þrjú strikin uppi í vinstra horninu).
  2. Velur "Upplifanir" (Experiences).
  3. Smellir á "+Bæta við" í hægra horninu.

Upplýsingar á viðburðinum

Næsta skref er að setja inn grunnupplýsingarnar sem þú vilt að komi fram á upplifuninni eins og nafn, lýsing og lengdina á henni. Einnig getur þú sett inn upplýsingar um verð og fjölda gesta.


Netbeiðnir

Ef þú ætlar að birta upplifunina í netbeiðnum þá þarftu að passa upp á að hakið „birta þjónustu í netbeiðnum“ sé á. Hér getur þú einnig sett inn mynd sem passar við upplifunina, stjórnað hvaða borð eru bókanleg og haft sérsniðin skilaboð sem birtast á staðfestingarskjá eftir bókun. 

Þegar mynd er sett inn á upplifunina, stofnast sjálfkrafa upplifunarsíða sem hægt er að deila hlekk á tiltekna upplifun. Hlekkurinn er undir netbeiðnum í uplifuninni.

Svona líta upplifunarsíðurnar út:



Reglusett

Til þess að ákvarða hvenær á að vera hægt að bóka á upplifunina þá þarftu að setja upp reglusett.

  1. Byrjar á því að smella á valmyndina (þrjú strikin uppi í vinstra horninu.
  2. Velur "Reglusett".
  3. Smellir á "+Bæta við" í hægra horninu 
  4. Nýtt reglusett 

Þar getur þú valið hverskonar reglu þú vilt setja upp. Um er að ræða 6 mismunandi tegundir af reglum.


  • Opnunartímar: þessi reglar ákvarðar opnunartímann fyrir viðburðinn. Athugið að ef opnunartíminn á að vera öðruvísi en hefðbundinn opnunartími þá þarf að stilla hann hér.
  • Netbókanir: Hérna ertu að stilla hvenær viðskiptavinir eiga að geta bókað í viðburðinn á netinu.
  • Sérsniðinn hámarksfjöldi gesta: Hér setur þú inn hámarksfjölda gesta sem getur komið á viðburðinn.
  • Yfirskrifa lengd bókunar: Hér getur þú breytt lengdinni á bókuninni og ef það á við um ákveðinn fjölda gesta.
  • Greiðslur: Þú getur krafist fyrirframgreiðslu, staðfestingargjalds eða að fá kortaupplýsingar viðskiptavinar fyrir bókun á viðburðum.


  • Sérsniðin skilaboð: Hér getur þú sérsniðið skilaboðin sem viðskiptavinir fá send í tölvupósti og við staðfestingu á bókun fyrir viðburðinn.

5. Síðasta skrefið er síðan að stilla dagsetninguna fyrir upplifunina. Það er gert með því að ýta á þrjá punktana hægra megin á reglusettinu

-> Velur síðan + Bæta við tímabili og setur þar inn dagsetninguna eða tímabilið undir 'upphafs dagsetning' og 'loka dagsetning'.


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna eða í tölvupósti á hq@noona.is ef einhverjar spurningar eða pælingar vakna💛