Það eru nokkrar leiðir til að leita upp kvittun og senda til viðskiptavinar í kerfinu.
Byrjaðu á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is
1. Í gegnum "Payments"
a. Farðu í Sales → Payments í valmyndinni vinstra megin.
b. Þú getur skrollað til að finna greiðsluna, eða ef þú veist nákvæma upphæð og dagsetningu geturðu síað eftir þeim með því að nota filter eftir "date created" eða "amount".
c. Þegar þú finnur viðeigandi greiðslu, smelltu á hana til að birta greiðsluupplýsingar hægra megin á skjánum.
d. Í greiðsluupplýsingunum, smelltu á Order ID til að skoða pöntunina.
e. Efst í hægra horni pöntunarinnar, smelltu á Receipt.
f. Þá birtist gluggi þar sem þú getur annaðhvort afritað hlekkinn á kvittunina eða sett inn netfang viðskiptavinarins og sent kvittunina beint til þeirra.
2. Í gegnum "Orders"
a. Smelltu á Sales → Orders Advanced í vinstri hliðarslánni.
b. Finndu viðeigandi pöntun með því að skrolla, nota leitarstikuna eða síuvalkosti.
c. Þegar þú hefur fundið réttu pöntunina, smelltu á hana til að opna pöntunina.
d. Efst í hægra horni pöntunarinnar, smelltu á Receipt.
e. Þá birtist gluggi þar sem þú getur annaðhvort afritað hlekkinn á kvittunina eða slegið inn netfang viðskiptavinarins og sent kvittunina beint til hans.
3. Í gegnum "Customer"
a. Farðu í Customers í valmyndinni vinstra megin.
b. Finndu viðkomandi viðskiptavin annaðhvort með því að rúlla í gegnum listann eða nota leitarstikuna fyrir ofan listann. Þegar þú hefur fundið viðkomandi, smelltu á nafnið þannig að viðskiptaupplýsingar birtist hægra megin.
c. Í upplýsingum viðskiptavinarins skaltu smella á Old profile. Þá opnast nýr vafraflipi.
d. Í nýopnaða flipanum skaltu smella á Orders. Þar finnur þú lista yfir allar pantanir viðskiptavinarins.
e. Finndu réttu pöntunina og hakaðu í boxið lengst til vinstri (þú þarft að smella rétt hægra megin við boxið).
f. Þegar þú hefur hakað í reitinn, skrollaðu alveg niður og smelltu á Choose an Operation. Þá birtist fellilisti.
g. Veldu Send Receipt og APPLY ON SELECTED ITEMS. Ef viðskiptavinur er þegar með skráð netfang verður kvittunin send á það netfang. Ef þú vilt breyta netfanginu og senda hana annars staðar geturðu slegið inn nýtt netfang í To* reitinn.