Hvað er í kassanum?
Í kassanum finnurðu allan búnað sem þú þarft til að hefja notkun. Hér að neðan eru upplýsingar um það sem er að finna í kassanum:
- Spjaldtölva
- Lyklaborð
- Spjaldtölvustandur
- Posi
- Netbeinir (router)
- Gjafir frá Noona og Símanum
Næstu skref
Við höfum undirbúið allt sem þarf svo þú getir byrjað sem fyrst. Nú eru nokkur einföld skref eftir áður en þú getur hafið notkun.
1. Stofna Noona HQ aðgang
Þú getur sleppt þessu skrefi ef þú átt nú þegar Noona HQ aðgang!
[Smelltu hér] og stofnaðu Noona HQ aðgang.
- Ef þú þarft nánari leiðbeiningar um Noona HQ geturðu skoðað hjálparsíðuna okkar með því að [smella hér].
Við mælum með að þú sækir Noona HQ appið. Þar hefurðu dagskrána þína alltaf við höndina og getur sinnt daglegum verkefnum hvar og hvenær sem er.
Sækja Noona HQ appið:
- App store [smelltu hér].
- Play Store [smelltu hér].
Kostir þess að nota appið:
- 🔔 Fáðu tilkynningar beint í símann, t.d. þegar ný bókun berst eða breytingar verða á dagskrá.
- 📅 Opnaðu dagskrána þína hvenær sem er og fáðu góða yfirsýn yfir daginn.
- 📱 Skráðu þig fljótt inn og hafðu aðgang að helstu upplýsingum á ferðinni.
- ⚡ Sinntu verkefnum án þess að þurfa að opna tölvu eða vafra.
- 💬 Vertu alltaf með puttann á púlsinum, hvort sem þú ert á vinnustaðnum eða á ferðinni.
2. Spjaldtölva
- Kveiktu á spjaldtölvunni og settu í hleðslu.
- Komdu spjaldtölvunni fyrir á spjaldtölvustandinum og kveiktu á lyklaborðinu.
- Sæktu Noona HQ appið í spjaldtölvuna.
- Skráðu þig inn með Noona HQ aðganginum þínum.
3. Greiðsluposi
- Kveiktu á greiðsluposanum og settu í hleðslu.
4. Netbeinir (router)
- Tengdu netbeini samkvæmt leiðbeiningum [hér í gegn].
Gangi þér vel! 🚀
Við vonum að uppsetningin hafi gengið vel og að allt sé klárt til að hefja notkun. Á hjálparsíðunni okkar [hér í gegn] finnurðu leiðbeiningar, góð ráð og svör við algengum spurningum.
Ef þú þarft aðstoð er þjónustuteymið okkar alltaf tilbúið að hjálpa. Hafðu samband í gegnum spjallið í Noona HQ, sendu tölvupóst á hq@noona.is eða hringdu í 528-0080.
💡 Ertu að kynna þér Noona Strax?
Noona Strax er tilbúin heildarlausn fyrir þjónustufyrirtæki sem inniheldur hugbúnað, greiðslulausnir og allan nauðsynlegan búnað til að komast fljótt af stað. Ef þú vilt fræðast meira eða panta þinn eigin Noona strax kassa geturðu heimsótt Noona Strax síðuna [hér í gegn].
