Bókunarboð

Lærðu hvernig þú getur sent viðskiptavinum þínum boð um bókun.

Með því að senda bókunarboð getur þú sent viðskiptavinum þínum boð um að bóka tíma hjá þér. Góður kostur ef þú vilt að viðskiptavinur staðfesti bókunina og/eða greiði staðfestingargjald.


Hvernig sendi ég bókunarboð?
  1. Smellir á dagatalið á þann tíma sem þú vilt bjóða.
  2. Fyllir út upplýsingar um viðskiptavin.
  3. Smellir á senda bókunarboð.


  4. Stillir hversu lengi bókunarboðið á að vera í gildi og bætir við skilaboðum með boðinu ef það á við.
  5. Smellir á senda bókunarboð.

💡 Bókunarboðið birtist röndótt á dagatalinu á meðan það er í biðstöðu. Þegar bókunarboðið hefur verið samþykkt birtist litur þjónustunnar á tímabókuninni en ef bókunarboðið rennur út þá hverfur bókunarboðið af dagatalinu. 


Hvað þarf viðskiptavinurinn að gera?

Með því að senda bókunarboð, fær viðskiptavinurinn tölvupóst og tilkynningu í Noona appið. Bókunin verður í biðstöðu þangað til boðinu er svarað. Ef þú ert með fyrirframgreiðslur virkjaðar, þarf viðskiptavinurinn að greiða til þess að geta samþykkt boðið. 

Tilkynning frá Noona appinu:



Tölvupóstur:

Dæmi um notkunartilvik

Iðunn – sálfræðistofa
Iðunn rekur sálfræðistofu og býður skjólstæðingum sínum ekki upp á að bóka tíma sjálfir á netinu. Í stað þess sér hún sjálf um að finna viðeigandi tíma og bóka fyrir þau. Með því að nota bókunarboð getur hún sent skjólstæðingum tillögu að tíma á einfaldan og þægilegan hátt, án þess að þurfa að hringja eða eiga í löngum tölvupóstsamskiptum. Skjólstæðingurinn fær boðið og getur auðveldlega staðfest tímann.

Pétur – hárlengingar
Pétur vinnur við að setja hárlengingar og bókar oft næsta tíma hjá viðskiptavinum sínum í lok hvers tíma. Þar sem hver meðferð tekur langan tíma hefur það mikil áhrif ef viðskiptavinir mæta ekki. Til að draga úr líkum á því sendir Pétur bókunarboð í stað þess að bóka tímann beint í dagatalið. Viðskiptavinurinn þarf að staðfesta tímann og greiða staðfestingargjald áður en bókunin verður staðfest, þannig er hann öruggur um að fá alltaf eitthvað fyrir sinn tíma.


Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.