Tengja posa frá Straumi


Hvernig virkar posatenging?

Hægt er að tengja posa frá Straumi við sölukerfi Noona. Með því hoppar upphæðin beint í posann um leið og þú velur greiðslukort sem greiðslumáta í sölukerfi Noona og reikningurinn merkist sem greiddur um leið og posafærslan fer í gegn. Þetta tryggir það að reikningar séu að stemma við færslur í posanum, réttur posi sé valinn við afgreiðslu og síðan skapar þetta auðvitað aukin þægindi & tímasparnað.


Setja upp posatengingu

Ert þú að nota Noona HQ í vafra eða appið? Það skiptir ekki máli á hvorum staðnum þú tengir posann en hér fyrir neðan eru leiðbeiningar fyrir hvoru tveggja.

Ertu verktaki?

Áður en þú byrjar á því að tengja posann passaðu þá upp á að eftirfarandi atriði séu í lagi:

1. Þú ert skráð/-ur inn á þinn eigin Noona HQ aðgang. Ef þú ert ekki viss geturðu farið undir Stillingar -> Almennt og séð þar netfangið sem         er innskráð.

2. Sért skráð/-ur sem verktaki í sölukerfinu. Smelltu hér til þess að finna upplýsingar um hverngi það er gert.

3. Nú er allt klárt og þú getur fylgt leiðbeiningunum hér að neðan.


1. Farðu í Valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu (ef þú ert í vafra) en niðri í hægra honinu (ef þú ert í appinu). Svona lítur merkið út:

2. Því næst skrollarðu neðst niður undir Stillingar → Greiðsluleiðir sem þú finnur undir Sala (ef þú ert í vafra) eða smellir á Þrjá punktana uppi í               hægra horninu → Stillingar  Greiðsluleiðir (ef þú ert í appinu).

Ef þú ert með hlutverkastillingar sem kallast Starfsmaður í Noona HQ getur þú ekki séð flipann Greiðslumáti. Því myndir þú fyrst þurfa að biðja eiganda um leyfi fyrir þessum stillingum.



3. Nú smellirðu á Tengja posa → Tengja Straums posa.


4. Nú opnast gluggi þar sem þú þarft að setja inn User ID og API ykil. Þegar það er klárt smellirðu á tengjast.

Veistu ekki hvar User ID og API lykilinn er?


Þú færð User ID og API lykill sent með öruggum hætti í tölvupósti frá Straumi á þitt skráða netfang. Þessar upplýsingar notar þú til þess að setja inn í reitina í skrefi 4.


5.  Velur réttan posa út frá S/N númerinu sem þú finnur aftan á posanum þínum.

6. Velur hvaða útgefanda á að tengja við posann.

7. Ef þú ert nú þegar með tengdan posa smellirðu á gamla posann sem er nú þegar tengdur undir greiðsluleiðir og smellir á aftengja frá útgefanda.

Nú er allt klárt og upphæðin úr sölukerfinu byrjar að hoppa inn í posann!



Ef þú ert með einhverjar spurningar ekki hika við að hafa samband í gegnum spjallbúbbluna. Hlökkum til að heyra frá þér! 💛