Uppgjör á eigin reikning fyrir verktaka

Hvernig virkar uppgjör á eigin reikning?

Verktakar geta verið með sinn eigin bankareikning tengdan og þar með fengið lagt beint inn á sinn bankareikning þegar viðskiptavinir greiða fyrir tímann. Við bjóðum upp á tvenns konar greiðslumáta sem hægt er að nýta meðfram kerfinu okkar. 


Noona Paylink

Gerir þér kleift að rukka viðskiptavini með því að senda rukkun beint í símann þeirra með einum smelli úr kerfinu. Að auki geta nú viðskiptavinir greitt fyrir vörur og þjónustu í einni og sömu greiðslunni þrátt fyrir að peningurinn eigi að vera lagður inn á sitthvorn bankareikninginn. Þú getur lesið nánar um hvernig Noona Paylink virkar hér.


Noona Pay

Með Noona Pay (fyrirframgreiðslum) getur þú tekið við greiðslu þegar viðskiptavinir bóka tíma hjá þér á Noona. Hægt er að leyfa þeim að velja um að klára greiðslu við bókun og/eða krefjast staðfestingargjalds. Þú getur lesið nánar um hvernig Noona Pay virkar hér.


Virkja uppgjör á eigin reikning
  1. Þú þarft að byrja á því að sækja um greiðslugátt hjá færsluhirði á þinni kennitölu sem þú getur gert hér í gegn.

  2. Færsluhirðirinn sem þú valdir mun síðan senda þér tölvupóst með tilboði sem þú þarft að samþykkja.

  3. Þegar tengiupplýsingarnar eru komnar inn þá mun verktaki skrá sig inn á sinn eigin Noona HQ aðgang.

  4. Fer undir Stillingar -> Salan mín og hakar við Virkja uppjgör á eigin reikning.

Upp kemur appelsínugulur reitur þar sem stendur "Eigandi á eftir að opna fyrir uppgjör á þennan reikning. Þangað til eru fyrirframgreiðslur gerðar upp á fyrirtækjareikning".


Í þessu skrefi þarf eigandinn að hoppa inn í og fara í gegnum skref 5-7.

5. Eigandinn skráir sig inn á sinn eiganda aðgang.

6. Fer undir Netbeiðnir -> Prófíll fyrirtækis -> Fyrirframgreiðslur -> Breyta stillingum.

7. Þar opnast stillingarnar fyrir Bókunargreiðslurnar og undir Starfsmenn -> Breyta hakar þú í Leyfa uppgjör á eigin reikning fyrir tiltekinn starfsmann.

Þá ætti allt að vera klárt og þú getur byrjað að nýta Noona Pay og/eða Noona Paylink 🙌


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna ef eitthverjar spurningar vakna og/ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛