Að nota Item Sorting

Þegar þú vilt stilla vörunum upp í ákveðna röð í POS þá er gott að nota Item sorting, hér er nánari lýsing á því hvernig það virkar. 
Byrjaðu á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is

Farðu í Products > Item sorting

Vörurnar ættu að vera með ákveðna tölu stillta í gráa reitnum, ef að það er engin tala þá hefur ekkert sorting weight verið sett á vöruna og þær birtast af handahófi. Um leið og þú vistar þá mun kerfið setja efstu vöruna sem 0 og næsta númer 1 og svo framvegis. Þessar tölur í gráa reitnum er það sem stýrir staðsetningu vörunnar í POS. 
Hér sérðu listann inn í Admin 

Og hér er hvernig vörurnar koma upp í POS.

Þegar það er búið að uppfæra í Admin þá þarf að smella "refresh" takkann í POS til að sækja breytinguna.