Langar þig að bjóða þínum fastakúnnum að bóka hjá þér á netinu en vilt ekki að nýir kúnnar geti bókað hjá þér á netinu? Þá ertu á réttum stað.
Hvar stilli ég þetta?
- Farðu undir starfsmenn.
- Smelltu á viðkomandi starfsmann.
- Smelltu á flipann netbeiðnir.
- Taktu hakið af leyfa bókanir frá nýjum viðskiptavinum.

Ef þú ert með afhakað í leyfa bókanir frá nýjum viðskiptavinum þá munu eingöngu viðskiptavinir sem hafa hafa bókað hjá þér áður geta bókað tíma hjá þér á netinu.
Dæmi um notkun
Jóhanna er snyrtifræðingur sem hefur starfað í greininni í mörg ár og byggt upp traustan kúnnahóp. Eftirspurn frá núverandi viðskiptavinum er orðin svo mikil að hún hefur ekki tök á að taka við nýjum viðskiptavinum.
Til að stýra þessu hefur Jóhanna stillt bókunarkerfið þannig að aðeins fastakúnnar geti bókað tíma hjá henni á netinu. Með þessu tryggir hún að núverandi viðskiptavinir geti bókað tíma á einfaldan og þægilegan hátt, á sama tíma og hún sparar sér tíma sem annars færi í að bóka tíma handvirkt fyrir viðskiptavini sína.
Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.