Starfsfólk sem hefur stimplað sig inn eða út í sölukerfinu birtist sjálfkrafa á listanum sem birtist undir Team > Staff.
Smelltu á nafn starfsmanns til að sjá nánari upplýsingar hægra megin á skjánum.
Vaktir (Work)
Hér sérðu allar skráðar vaktir starfsmannsins, ásamt dagsetningu og tímasetningum. Lengst til hægri sérðu heildarlengd hverrar vaktar og blýantstákn sem þú getur smellt á til að breyta skráningunni.
Samantekt (Summary)
Hér getur þú valið ákveðið tímabil og flutt tímaskráningar út sem PDF eða Excel-skjal (XLS). Ef netfang er skráð á starfsmanninn getur þú einnig sent honum tímayfirlitið beint í tölvupósti.
Bæta við vakt (Add work)
Efst á síðunni getur þú smellt á „Add work“ til að bæta við vakt, til dæmis ef starfsmaður gleymdi að stimpla sig inn.
Breyta upplýsingum starfsmanns (Edit)
Smelltu á „Edit“ til að breyta upplýsingum og stillingum starfsmanns. Þar finnur þú eftirfarandi:
- Persónuupplýsingar (Personal): Nafn og kennitala.
- Samskiptaupplýsingar (Contact): Símanúmer og netfang.
- Heimildir (Permissions):
- PIN-númer (Pin code): Númer sem starfsmaður notar til að skrá sig inn í sölukerfið.
- Afsláttarheimildir (Allowed Discounts): Heimildir starfsmanns til að veita afslætti í sölukerfinu.
- Stjórnandaheimildir (POS admin): Veitir aðgang að stillingum sölukerfisins ef hakað er við þennan valkost.
- Fela í sölukerfi (Hide in Epos): Felur starfsmann á starfsmannalista sölukerfisins ef hakað er við þennan valkost.
- Tímakaup (Rates): Tímakaup fyrir dagvinnu, kvöldvinnu, helgarvinnu, almenna frídaga og stórhátíðardaga.