Í Noona HQ er hægt að þýða alla texta sem birtast við bókanir, á markaðstorginu og í tölvupósti og SMS-samskiptum við viðskiptavini. Þýðingar birtast síðan út frá stillingum notenda.
Þetta tryggir hnökralausa upplifun á markaðstorginu, í Noona HQ og í öllum samskiptum við viðskiptavini.
👤 Hvar stilla notendur tungumálið?
Viðskiptavinir þínir og starfsmenn sjá þær þýðingar sem passa við tungumálastillingarnar þeirra.
Noona HQ notendur
Starfsfólk getur valið á hvaða tungumáli þau vilja stilla sinn aðgang. Það er gert með því að fara undir valmynd - stillingar - almennt.
Noona notendur
Viðskiptavinir þínir geta sömuleiðis stillt tungumálið eftir sínum þörfum. Inn á noona.is er það gert efst uppi í hægra horninu og í Noona appinu er smellt á persónuna uppi í hægra horninu og smellt á hnöttinn neðst niðri á skjánum.
Hægt er að velja sjálfvalið tungumál fyrir útsendar áminningar eins og SMS skilaboð og tölvupósta. Ef viðskiptavinur er með Noona appið stillt á öðru tungumáli þá ræður tungumálið í appinu á hvaða tungumáli þau fá áminningarnar.
Hvar? Valmyndi -> stillingar -> upplýsingar -> tungumál áminninga.
✍️ Hvað er hægt að þýða?
Hægt er að þýða alla texta sem birtast við bókanir, á markaðstorginu og í samskiptum við viðskiptavini í tölvupósti og SMS-um.
- Titla á upplifunum.
- Lýsingar á upplifunum.
- Titla og lýsingar á gjafabréfum.
- Lýsing á fyrirtækinu.
- Staðfestingarskilaboð.
- Skilaboð sem sendast við bókunarboð.
- Nöfn á borðum.
- Sérsniðin SMS áminningarskilaboð.
- Bókunarstaðfesting.
- Bókunarspurningar.
🌍 Hvaða tungumál er hægt að þýða á?
íslensku, ensku, spænsku, frönsku, portúgölsku, tékknesku og rússneska.
🔧 Hvar finn ég þessar stillingar?
Titill á upplifunum
Hvar? Valmynd - upplifanir - velur viðkomandi upplifun - smellir á hnöttinn eða bæta við hjá nafn upplifunar.


Lýsingar á upplifunum
Hvar? Valmynd - upplifanir - velur viðkomandi upplifun - smellir á hnöttinn eða bæta við hjá lýsing.
Titlar og lýsingar á gjafabréfum
Hvar? Valmynd - stillingar - gjafabréf - velur viðkomandi gjafabréf - smellir á hnöttinn eða bæta við.
Lýsing á fyrirtækinu
Þessi texti birtist undir 'um okkur' inn á Noona prófíl fyrirtækis.
Hvar? Valmynd - stillingar - netbeiðnir - prófíll - lýsing.
Staðfestingarskilaboð
Þessi skilaboð verða sýnileg á staðfestingarsíðunni eftir bókun og innifalin í staðfestingarpóstinum sem viðskiptavinir þínir fá eftir að bókun þeirra hefur verið staðfest.
Hvar? Valmynd - stillingar - netbeiðnir - sýnileiki - skrollar niður undir staðfesting - smellir á hnöttinn eða bæta við.
Nöfn á borðum
Hvar? Valmynd - stillingar - borð - velur viðkomandi borð - smellir á hnöttinn eða bæta við hjá nafn á borði.
Sérsniðin SMS skilaboð
Hvar? Valmynd - áminningar - stofnar áminningu - smellir á hnöttinn eða bæta við.
Bókunarstaðfesting
Staðlaður tölvupóstur sem sendist út þegar tími hefur verið bókaður.
Bókunarspurning
Hvar? Valmynd - upplifanir - velur viðkomandi upplifun - netbeiðnir - skrollar niður undir bókunarspurning - smellir á hnöttinn eða bæta við.
Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.