Virkja áskrift

Gaman að heyra að þú ætlir að koma í áskrift að Noona HQ. Takk fyrir að gefa okkur traustið og að taka þátt í vegferðinni í átt að betri stöðu þjónustuveitenda 💛

Til að byrja með þarftu að opna hq.noona.app í vafra, þ.e. ekki í appinu.

Þaðan förum við í Valmyndina -> Stillingar -> Áskrift og þessi gluggi opnast.

Smelltu á verðið undir Ofurbókanir eða Sölukerfi eftir því hvaða áskrift þú vilt bæta við þig.

Þar setur þú inn greiðsluupplýsingar og staðfestir áskriftina.

Þá er allt klárt🎉


Ekki hika við að heyra í okkur ef þú hefur einhverjar spurningar, vangaveltur eða athugasemdir. Þú getur sent okkur skilaboð í gegnum spjallbúbbluna eða sent tölvupóst á hq@noona.is 💛