Ef fyrirtæki býður upp á þjónustu á fleiri en einum stað eru tvær leiðir til þess að setja það upp í Noona HQ:
- Stofna sér útibú fyrir hverja staðsetningu.
- Nota svæði til að halda utan um fleiri en eina staðsetningu á sama Noona HQ aðgangi.
Hvaða leið hentar best fer eftir starfseminni og hversu reglulega er tekið á móti viðskiptavinum á hvorum stað.
Leið 1: stofna útibú
Við mælum með að stofna útibú fyrir stærri fyrirtæki sem eru með fasta starfsemi á tveimur eða fleiri stöðum.
Þegar nýtt útibú er stofnað verður til nýr Noona HQ aðgangur með eigin:
- Noona prófíl og staðsetningu
- Þjónustulista
- Starfsfólki
- Opnunrtímum
- Uppsetningu
- Stillingum
Hægt er að tengja útibúin saman undir einni keðju og fletta auðveldlega á milli þeirra í Noona HQ. Á Noona markaðstorginu geta þau bæði birst saman sem keðja eða í sitt hvoru lagi.
Þú getur skoðað þessa leið betur í gegnum þessa hjálpargrein.
Þar sem útibú er nýr Noona HQ aðgangur, þá gildir sama verðskrá fyrir hann eins og fyrri aðganginn.
Leið 2: Nota svæði
Ef um er að ræða einyrkja eða einn starfsmann sem vinnur að mestu á einum stað en tekur öðru hverju á móti viðskiptavinum annars staðar getur verið hentugra að nota svæði.
Þessi leið getur til dæmis hentað starfsmanni sem tekur á móti viðskiptavinum úti á landi nokkrum sinnum í mánuði en vill halda öllum bókunum á sama Noona HQ aðgangi.
Mikilvægt að hafa í huga!
Þegar svæði eru notuð eru báðar staðsetningarnar undir sama Noona prófílnum. Það þýðir að aðeins ein aðalstaðsetning og eitt heimilisfang birtist á prófíl fyrirtækisins á Noona.
Viðbótarstaðsetningin fær því ekki sérstakan prófíl á markaðstorginu. Upplýsingar um hana þurfa því að koma skýrt fram í heiti þjónustunnar og í staðfestingartölvupósti eða SMS-skilaboðum.
Ef fyrirtækið er með fasta og reglulega starfsemi á báðum stöðum mælum við almennt með því að stofna sérstakt útibú fyrir hvora staðsetningu.
Hvernig er uppsetningin?
Til að aðgreina staðsetningarnar mælum við með eftirfarandi uppsetningu:
- Byrjar á að stofna svæði fyrir viðbótarstaðsetninguna. Það er gert með því að fara í Valmyndina -> Svæði -> +Bæta við.
- Nú ertu komin með sér dagatal fyrir staðsetninguna þar sem bókanir koma inn og getur stillt vinnutíma og sett inn frítíma á dagatalið til að skilgreina opnunartímann á þessari staðsetningu.
- Næst stofnar þú yfirflokk í þjónustulistanum fyrir hvora staðsetningu og láttu heiti flokksins vísa til staðsetningarinnar. T.d. Reykjavík og Akureyri.

- Stofnaðu sérstakar þjónustur fyrir hvora staðsetningu og settu þær undir viðeigandi yfirflokk.
- Tengdu þjónusturnar á staðsetningunni við svæðið. Það er gert með því að fara í valmyndina ->þjónustur -> smellir á þjónustuna -> netbeiðnir -> og velur það svæði sem á við undir netbeiðnastillingar

Þegar þetta er komið þá lítur þetta svona út (sjá mynd fyrir neðan) þegar viðskiptavinurinn fer að bóka tíma og bókanirnar ættu að fara á viðeigandi dagatal eftir því hvaða þjónustu viðskiptavinurinn velur.

Smelltu hér til að læra meira um svæði.
Upplýsingar til viðskiptavina
Þegar svæði eru notuð er mikilvægt að tryggja að viðskiptavinurinn viti á hvaða staðsetningu hann á bókaðan tíma.
Hægt er að sérsníða staðfestingartölvupóst og SMS-skilaboð fyrir hverja þjónustu og bæta þar við upplýsingum um staðsetningu og heimilisfang. Einnig er gott að láta staðsetninguna koma skýrt fram í heiti eða lýsingu yfirflokksins og þjónustunnar.
- Til þess að bæta þessum upplýsingum í staðfestingartölvupóstinn er farið í Valmyndina -> þjónustur -> smellir á viðeigandi þjónustu -> Netbeiðnir og bætir þar við texta undir "Staðfestingarskilaboð".

- Til þess að bæta við upplýsingum í sms skilaboðin fyrir tiltekna þjónustu ferð þú í Valmyndina -> Áminningar -> smellir á bláa plús takkann -> Sértæk áminning -> og velur þar þjónustuna sem þú vilt að þessi áminning sendist fyrir og breytir einnig textanum undir "Skilaboð".

Gangi ykkur vel og ekki hika við að hafa samband í gegnum bláu spjallbúbbluna ef að þið hafið frekari spurningar ❤️

