Til að skrá þig inn í hq.salescloud.is þarftu fyrst að stofna nýtt lykilorð.
Athugaðu að innskráningin í HQ er ekki sú sama og þú hefur áður notað á admin.salescloud.is.
1. Byrjaðu á að endurstilla lykilorðið
Farðu á hq.salescloud.is og veldu „Reset password“

Sláðu inn netfangið þitt til að setja lykilorðið

2. Athugaður tölvupóstinn þinn, en þú ættir að hafa fengið póst með hlekk til að búa til nýtt lykilorð.
Smelltu á Confirm í tölvupóstinum

3. Veldu nýtt lykilorð og smelltu svo á "Reset Password"

4. Þegar þú hefur stofnað nýtt lykilorð sem uppfyllir þær kröfur sem kerfið gerir þá smellir þú á "Back to HQ" og skráir þig inn með nýja lykilorðinu.

Athugaðu að þetta er ekki endilega sama lykilorðið og var sett á admin.salescloud.is og nú er netfangið þitt notað til innskráningar.