Vörusala

Í sölukerfinu getur þú haldið utan um og selt vörurnar þínar ásamt því sem þú getur auðveldlega séð hvaða vörur viðskiptavinir þínir hafa keypt áður. 


Stofna vöru
  1. Þú byrjar á því að fara í valmyndina sem þú finnur uppi í vinstra horninu.
  2. Næst ferðu undir sala og smellir á vörulisti.
  3. Smellir á bláa hnappinn uppi í hægra horninu sem stendur á +Bæta við og lítur svona út:
  4. Velur +vara.

Vöruflokkar

Ef þú ert með margar vörur til sölu notar þú vöruflokka til þess að skipuleggja vörurnar þínar þannig auðvelt sé fyrir þig að finna þær vörur sem þú ætlar að selja hverju sinni í miðju söluferli.

Stofna nýjan vöruflokk

Þetta er gert á sama hátt og ný vara er stofnuð nema þegar þú smellir á +bæta við þá velur þú í staðin +yfirflokkur

Síðan setur þú inn heiti vöruflokksins og getur valið ákveðin lit til þess að aðgreina vöruflokkana. Að lokum smellir þú á stofna vöruflokk. 

 Ef þú vilt aðgreina vörurnar enn frekar getur þú verð með undirflokk undir vöruflokknum. T.d. geturðu verið með vöruflokk sem heitir sjampó og undirflokk sem heitir Davines.

Þú bætir við undirflokknum með því að smella á + (plúsinn sem þú finnur við hliðina á vöruflokknum í vörulistanum og velur + yfirflokkur.


Bæta vöru inn í vöruflokk

Það er hægt að gera á tvenns konar hátt:

  1. Ef þú ferð undir vörulistann og smellir á ákveðinn vöruflokk getur þú hakað við þær vörur sem tilheyra viðkomandi vöruflokk.
  2. EF þú ferð undir vörulistann og smellir á ákveðna vöru getur þú valið hvaða vöruflokk varana á að tilheyra undir yfirflokkar.

Strikamerki

Ef að vöruskanni er tengdur við tölvuna er hægt að bæta við strikamerki á hverja vöru og þannig hægt að skanna vörur inn í söluna í stað þess að leita af þeim eftir nafni. 

Þú stofnar strikamerki með því að smella á vöruna í vörulistanum --> setur músina á stikuna undir strikamerki og skannar síðan inn vöruna.


Birgðakerfi

Þú getur skellt inn birgðastöðu á vörum inni í sölukerfinu og þannig fengið tilkynningu um leið og birgðarstaðan er orðin lág hjá þér.

Lestu meira um birgðakerfið hér.


Nánari lýsing

Hægt er að vera með nánari lýsingu á vörunum. Það er gert með því að smella á vöru í vörulistanum og valið nánari lýsing. 

Bókhaldsnúmer: Ef þú flokkar vörur þínar eftir bókhaldsnúmerum er þetta þinn reitur.
Mynd: Birtist í söluferlinu og einfaldar þér að velja rétta vöru þar.
Lýsing: Hefur engin áhrif eins og er, en mun vera mikilvægt þegar vörur birtast inni á Noona. 


Fjöldabreyting

Ef þú ert með langan vörulista og þarft að gera breytingar á honum, eins og t.d. verðbreytingar, þá höfum við einfaldað ferlið fyrir það. Þú einfaldlega smellir á "fjöldabreyting" í vörulistanum og færð þá yfirlit yfir allar vörur þar sem þú getur breytt heiti, verði, lagerstöðu, sett inn strikamerki og VSK %.

 


Endilega hafðu samband við okkur í gegnum spjallbúbbluna ef eitthverjar spurningar vakna og/ef þú ert með einhverjar ábendingar 💛