Gagnaflutningur starfsfólks

Þegar að starfsfólk flytur sig á milli vinnustaða er möguleiki að flytja gögnin þeirra yfir á nýja staðinn með þeim. Til þess þarf leyfi frá eiganda stofunnar sem verið er að fara frá.

Hvað þarf að gera?
  1. Starfsmaður óskar eftir flutningi og biður eiganda núverandi vinnustaðar að hafa samband við hq@noona.is
  2. Eigandinn fyllir út form þar sem tekið er fram hvaða gögn er gefið leyfir fyrir því að flytja
  3. Haft er samband við eiganda nýja vinnustaðarins og viðkomandi gefur leyfi fyrir því að stofna nýja starfsmanninn í kerfinu
  4. Þau gögn sem gefið var leyfi fyrir eru flutt yfir

**Það þarf að stofna starfsmanninn á nýja vinnustaðnum á sama netfangi og er á eldri vinnustaðnum til þess að það sé hægt að flytja gögnin yfir.

En hvaða gögn er hægt að flytja yfir?
  1. Fortíðar bókanir og afrit af titeknum viðskiptavinum
  2. Framtíðar bókanir og afrit af tilteknum viðskiptavinum
  3. Afrit af öllum viðskiptavinum tiltekins starfsmanns
  4. Frítíma í dagatali
 Starfsmaður sem verið er að flytja gögnin fyrir greiðir 14.900 kr + vsk fyrir flutninginn.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef ykkur vantar aðstoð eða eitthverjar spurningar vakna 💛