Hvernig er hægt að bæta kennitölu við pöntun í bakenda

Stundum þarf að bæta við kennitölu á kvittun eftir að viðskiptavinur er farinn af staðnum og senda hana í gegnum bakenda SalesCloud, það er hægt með þessum skrefum hér.


Byrjaðu á því að skrá þig inn á admin.salescloud.is.

Ef viðskiptavinurinn er ekki þegar skráður í SalesCloud þarf að stofna hann áður en haldið er áfram. Hér má finna leiðbeiningar um hvernig á að stofna nýjan viðskiptavin.

Farðu í Sales → Orders Advanced.
Finndu pöntunina sem þú vilt uppfæra með því að filtera eftir tímasetningu eða upphæð (filter fyrir tímasetningu er alltaf efst fyrir ofan listann). Smelltu á rétta pöntun í listanum.


Upplýsingar um pöntunina birtast hægra megin, undir pöntunarnúmerinu (Order ID) sérðu Customer : Anonymous ásamt blýantstákni.
Smelltu á blýantstáknið.
Þá opnast gluggi þar sem hægt er að breyta eiganda pöntunarinnar


Hægt er að leita eftir nafni eða kennitölu viðskiptavinar í search. Ef nafni er sett í reitinn þá koma upp allir þeir viðskiptavinir sem hafa nafnið en þá þarf að velja réttan viðskiptavin og svo smellt á SAVE.

Kvittunin fyrir pöntunina mun nú sýna rétt nafn og kennitölu viðskiptavinarins og hægt er að senda hana beint á viðskiptavin með því að smella á "Receipt" efst í hægra horninu.