Að setja upp skrópvörnina er góð leið til þess að auka líkur á því að viðskiptavinir virði tímann sinn og mæti eða afbóki með góðum fyrirvara.
Það er einungis hægt að hafa eina kennitölu sem að skrópvarnir eru greiddar á. Ef stofa er með marga verktaka mælum við með því að hafa staðfestingargjöld í stað skrópgjalda. Þú getur smellt hér til þess að lesa meira um Noona Pay <3
Setja upp Skrópvörnina
Til þess að klára skrópvarnar umsóknina þína þarftu að fylla út eftirfarandi upplýsingar sem beðið er um í linknum hér fyrir neðan:
https://www.inkasso.is/komdu-i-vidskipti/inkasso-noona/
Þegar þú hefur opnað hlekkinn þarftu að skrolla aðeins niður til þess að setja inn upplýsingarnar (ekki ýta á 'komdu í viðskipti' sem þið sjáið efst í hægra horninu).
Til þess að klára umsóknina þarf að skrá forsvarsmann með kennitölu og símanúmeri sem passa saman og eiga rafrænt skilríki. Þetta er í flestum tilfellum einfaldlega persónulegar upplýsingar eiganda stofunnar
Eftir 1-3 daga muntu síðan fá póst frá inkasso þar sem þú getur klárað rafrænu undirskriftina og þegar að það er komið verður skrópvörnin þín virk!
Svona lítur pósturinn út þar sem beðið er um rafræna undirskrift:

Þú smellir á "Skoða" og við það opnast síða þar sem símanúmerið hjá skráðum forsvarsmanni er sett inn:

Eftir auðkenninguna opnast þessi gluggi hér með nafni forsvarsmanns:

Skjalið lítur síðan svona út:

Þegar þú hefur lesið yfir skjalið smelliru á "Ég hef lesið og samþykki".
Þegar að skrópvörnin hefur verið virk munu viðskiptavinir framvegis sjálfkrafa þurfa að setja inn kennitöluna sína við bókun og haka í reit þar sem notkun skrópgjalda er samþykkt.
Þá er það ekki fleira í bili. Ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum bláu spjallbúbbluna ef eitthverjar spurningar vakna 💛