Ert þú með hóp viðskiptavina sem að fær alltaf afslátt og villt ekki þurfa að muna það í hvert skipti? Villtu senda út herferð á ákveðna viðskiptavini?
Hvernig bý ég til viðskiptavinahópa?
- Farðu inn í Viðskiptavinir í hliðarstikunni.
- Finndu viðskiptavin sem þig langar til þess að bæta í viðskiptavinahóp.
- Smellir á "bæta inn í viðskiptavinahóp".

- Ýttu síðan á + Nýr viðskiptavinahópur og gefðu honum titil.

Næsta skref er að setja upp reglu fyrir þann viðskiptavinahóp, til dæmis ef sá hópur á að vera með einhvern ákveðin afslátt af þjónustum. Færðu þig yfir í Þjónustur -> veldu þá þjónustu sem þú villt hafa lægra verð fyrir -> Bæta við verði -> Nýtt verð fyrir viðskiptavinahóp.

Þegar það er komið þá er afar auðvelt að bæta við fleirum í viðskiptavinahópa hjá þér. Þú getur til dæmis gert það beint í gegnum tímabókun í dagatalinu með því að opna bókuninu og skrollað niður þar til þú sérð "bæta inn í viðskiptavinahóp".
Hvers vegna að nota viðskiptavinahópa?
- Viðskiptavinahópar geta verið afar sniðugir þegar þú ert með sjálfsafgreiðslukerfið. Þá mun kerfið lesa í verðið sem er sett fyrir hópinn sem viðkomandi er í þegar hann greiðir í gegnum sjálfsafgreiðslukerfið.
- Til þess að senda út sms herferðir á ákveðna hópa. Ýttu hér ef þú vilt læra hvernig þú sendir út sms herferðir.
- Þegar þú ert að nota Noona Pay (fyrirframgreiðslur) en þá fær viðkomandi rétt verð upp á Noona appinu þegar hann bókar út frá því í hvaða viðskiptavinahópi viðkomandi er í.
Eins og alltaf, ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert með einhverjar spurningar, hugmyndir eða vangaveltur 💙 Þú getur sent okkur skilaboð í spjallbúbbluna eða á netfangið hq@noona.is.

